Undanfarna daga hafa 3 kanadísk lið verið hér á Íslandi. Tvö karlalið, eitt yngra og annað eldra, og síðan eitt kvennalið. Lið þessi voru norður á Akureyri seinnipart síðustu viku og komu síðan til Reykjavíkur léku við Meistaraflokk kvenna og Oldboys SR. Meistaraflokkur kvenna sigraði leik sinn á móti Canada í Egilshöll í gærkvöldi. SR stúlkur komust í 2-0 sem var svo jafnað en leiknum lauk í jafntefli 3-3 og tóku þá vítin við og lokastaða leiksins var svo 4-3. Þetta er fyrsti sigur SR stúlkna á árinu. Ekki fer of miklum sögum af mannfáum Oldboys leikmönnum í SR en skemmst er frá því að segja að þeir þurftu að sætta sig við 4 marka tap eftir hetjulega baráttu við þá kanadísku.
Til baka








