Nú á dögunum var haldinn Aðalfundur Skautfélags Reykjavíkur (Aðalfélags) í félagsaðstöðunni í Skautahöllinni í Laugardal. Fundurinn var frekar fámennur einsog mörg önnur ár á undan. Skemmst er frá því að segja er að Margrét Ólafsdóttir var endurkjörinn sem formaður, Aðalheiður Gísladóttir var kjörin í ritara, gjaldkeri var endurkjörin Ragna Þóra Ragnarsdóttir. Varamenn eru Sigurður Kr. Björnsson og Ragnhildur Vigfúsdóttir. Meðstjórnendur eru sjálfkjörnir formenn deildanna og skoðunarmenn reikninga voru kosnir Maríus Þ. Jónasson og Birna Björnsdóttir.
Hægt er að nálgast fundargerðina hér í PDF formi.
Til baka








