Skautafélag Reykjavíkur - Um félagiđ

Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta íþróttafélag landins. Heimavöllur þess er Skautahöllin í Laugardal, þar sem æfingaaðstaða, skrifstofa og félagsheimili er til húsa. Félagið skiptist í tvær deildir, íshokkídeild og listhlaupadeild.

Um skautahöllina


Mikil fjölgun hefur átt sér stað í öllum yngri flokkum íshokkídeildarinnar en nú þurfa allir nýir iðkendur að byrja fyrst í Skautaskóla SR áður en þeir geta byrjað í íshokkídeildinni. Mikil áhersla er á barna- og unglingastarf þar sem kappkostað er að bjóða upp á góða þjálfun og góðan aga og félagsanda, jafnt innan vallar sem utan. Jafnframt er mikil áhersla á að virkja nýja foreldra til starfa fyrir deildina en deildin telur sig státa af öflugu félagsstarfi sem fyrst og fremst byggir á breiðri þátttöku foreldra og velunnara hennar. Ennfremur er lögð áhersla á að leikmenn SR fái að kynnast íshokkíi í öðrum löndum, m.a. með því að fara í keppnisferðir til útlanda eða að taka á móti erlendum liðum. 


Fyrstu heimildir í sögu Skautafélags Reykjavíkur eru frá miðri 19 öld þegar nemar í Latínuskólanum stunduðu skautahlaup á Tjörninni. Félagið var fyrst stofnað 1873 af menntaskólanemum og er eitt af elstu íþróttafélögum Reykjavíkur. 


» Nánar í sögu félagsins.





HaninnSaffran 10% afsláttur