markaður á notuðum skautum og æfingafötum

24.09.2008
Sælir foreldrar og iðkendur.

Nú höldum við skautamarkað næsta sunnudag 28.09.2008, milli klukkan 10:30 og 13:00

Ef þið eigið gamla skauta, kjóla, æfingagalla ofl. skautatengt, endilega takið til í skápunum og komið góðum hlutum aftur í notkun.
Hver og einn selur sitt dót sjálfur. 

Ef undirtektir verða góðar þá höldum við svona skautamarkaði reglulega í vetur.
Einnig verða til sölu eldri æfingapeysur í stærðum 128 , L og XL og flísbuxur með rennilás á hlið í mörgum stærðum
Ath.
Hafið með ykkur peninga það verður enginn posi á svæðinu.

Kveðja
  Foreldrafélagið

Til baka