Skautafélag Reykjavíkur kynnir með stolti lið Íslands í Unglingaflokki A á Norðurlandamóti 2009. Mótið verður haldið í Malmö, Svíþjóð, 5. - 9. febrúar næstkomandi. Heimasíða mótsins er http://www.nordics09.se/ og frekari upplýsingar á meðan á mótinu stendur munu koma fram þar sem og á heimasíðu Skautasambandsins http://skautasamband.is/
Dana Rut Gunnarsdóttir er 16. ára og er á sínu fyrsta ári í Unglingaflokki A. Hún hefur verið einn sigursælasti keppandi félagsins og hefur keppt áður á Norðurlandamóti sem og keppt á Copenhagen Trophy 2008. Hún var valinn fulltrúi Íslands á Junior Grand Prix sem haldin var í Frakklandi í ágúst s.l. en varð að draga sig í hlé vegna meiðsla. Dana er sigurvegari flokksins á Haustmóti 2008.
Guðbjörg Guttormsdóttir er 19 ára og hefur keppt áður á Norðurlandamóti sem og Stockholm Trophy
mótum. Guðbjörg er einstaklega hæfileikaríkur skautari og er einnig þjálfari hjá Skautafélaginu. Hún lenti í fyrsta sæti á Bikarmóti ÍSS árið 2008 og er því Bikarmeistari.
Íris Kara Heiðarsdóttir er 19 ára hefur um lengi verið einn af bestu skauturum félagsins. Hún hefur áður keppt á Norðurlandamótum sem og Copenhagen Trophy á síðasta ári. Íris er Íslandsmeistari í Unglingaflokki A árið 2008.
Við hvetjum þessa fulltúa okkar til dáða fyrir Íslands hönd sem og Helgu Jóhanns (SA), Sunnu Hrund (Björninn) og Írisi Lóu (Björninn) og óskum þeim öllum góðs gengis á NM. Hlökkum til að fylgjast með ferð þeirra.
Stjórn Listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur
Til baka







