Fréttir af okkar fólki á NM í Malmö

05.02.2009
HÆHÆ,

Ferðin til Malmö gekk mjög vel í gær. Mættum niður á bsí til að taka
flugrútuna kl.5 ókum uppá flugvöll og áttum góða stund á flugvellinum.

            Vorum mættar á hótelið sem er í 5 mínútna fjarlægð frá
skautahöllinni um 2 leitið. Fórum í göngutúr til að kanna svæðið og kaupa
okkur e'ð að borða :-) allt lítur vel út, keppnishöll og æfingasvell.
Æfingasvellið er svona bárujárnsbraggi með aðeins svellinu í og það lekur
vatn úr loftinu... þar sem það er ekkert spes veður; úði, rigning og pínu
kalt. Tókum því rólega um kvöldið til að vakna hressar fyrir æfinguna sem
var í morgun.

            Fórum á æfingasvellið um 12 í morgun, æfðum stutta og
samsetningarnar. Okkur gekk bara mjög vel :-) Giom var ánægður með árangurinn.


            Erum leggja leið okkar í mallið þar sem við förum window
shopping ;) svo er kvöldverðurinn í kvöld þar sem við verðum voða sætar og
fínar!



Fleiri fréttir síðar, bestur kveðjur : Guðbjörg, Dana og Íris

Til baka