Keppni er nú lokið á Norðurlandamótinu sem fram fór í Finnlandi um helgina. 5 stúlkur frá Íslandi tóku þátt í mótinu, þar af 3 frá SR. Stúlkurnar stóðu sig allar með prýði og er greinilegt að íslenskir skautarar eru að koma mjög ákveðið inn á þessu sterka móti.
Í Novice flokki (sjá meðfylgjandi mynd af Novice keppendunum sem tekin var á RIG 2012 mótinu) var Vala Rún B. Magnúsdóttir frá SR í 11. sæti af 20 keppendum, Agnes Dís Brynjarsdóttir frá Birninum var í 16. sæti, Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir frá SA var í 18. sæti og Kristín Valdís Örnólfsdóttir frá SR í 19. sæti. Í Junior flokki var aðeins einn keppandi frá Íslandi, Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir frá SR, og var hún í 17. sæti.
Þetta er besti árangur Íslands á NM hingað til og óskum við stúlkunum innilega til hamingju.
Til baka







