Fyrstu heimildir í sögu Skautafélags Reykjavíkur eru frá miðri 19 öld þegar nemar í Latínuskólanum stunduðu skautahlaup á Tjörninni. Félagið var fyrst stofnað 1873 af menntaskólanemum og er eitt af elstu íþróttafélögum Reykjavíkur.
Skautafélag Reykjavíkur skiptist í tvær deildir; Hokkídeild og Listhlaupadeild. Listhlaupadeild félagsins var stofnuð 1992.
Iðkendur Listhlaupadeildar ár hvert eru frá 200 – 240 talsins. Hjá Listhlaupadeild er lögð áheyrsla á færni í grunnskautun, deildinni má skipta í : Skautaskóla, tómstundaskautara og keppnisskautara. Keppnisskautarar hafa tekið þátt á opnum alþjóðamótum hér heima og í: Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Bandaríkjunum og staðið sig með ágætum. Deildin hefur einnig átt keppanda á Norðurlandamótum. Samhæfður Skautadans er einnig stundaður hjá deildinni. Senior lið deildarinnar tók þátt á Heimsmeistaramótum, árið 2002 í Frakklandi og 2003 í Kanada og stefnir á HM árið 2010.
Þjálfarar Listhlaupadeildar eru bæði erlendir og íslenskir og hefur félagið lagt mikla áherslu á að byggja upp íslenska þjálfara, samhliða uppbyggingu á góðum skauturum. Þjálfarar deildarinnar hafi allir sótt þjálfaranámskeið ÍSÍ.
Framtíðarsýn LSR er að halda áfram uppbyggingu á öflugu barna og unglingastarfi, hlúa vel að afreksfólkinu og að halda áfram að mennta og byggja upp góða íslenska þjálfara og að eiga skautara í einstaklingsgreininni og samhæfðum skautadansi á Alþjóðlegum sambandsmótum.







