Reglur fyrir alla LSR iðkendur

Mætið tímanlega: Æskilegt er vera komin í skautahöllina 30 mínútum áður en æfing hefst. Þannig gefst tími til upphitunar í 20 mínútur og 10 mínútur til að fara í skautana. Upphitun er mjög mikilvæg fyrir alla iðkendur, sérstaklega í framhaldshópum, og hjálpar til við að koma í veg fyrir meiðsli.

  1. Málfar: Slæmt málfar verður ekki þolað á ísnum. Byggjum upp jákvæðan íþrótta-anda og sýnum gott fordæmi.

  2. Veikindi: Æskilegt er að iðkendur mæti ekki lasnir á æfingar. Það getur haft alvarlegri og lengri veikindi í för með sér fyrir þá, og getur einnig leitt til þess að aðrir iðkendur og þjálfarar verði veikir.

  3. Aldrei skal yfirgefa ísinn á miðri æfingu nema láta þjálfara vita. Þannig geta þjálfarar fylgt eftir iðkendum sem þurfa að fara af æfingu vegna meiðsla eða annara óþæginda og verið viss um að iðkendur séu í góðum höndum.

  4. Matur og drykkir: Stranglega bannað er að vera með tyggjó. Mælst er til þess að iðkendur drekki vatn fyrir og eftir æfingu, og séu ekki með vatnsflöskur á æfingum nema þær séu lengri en 2 klukkutímar.

  5. Virðið reglurnar: Farið eftir leiðbeiningum þjálfara og virðið ákvarðanir þeirra.