Móts undirbúningur 

Skautarar skulu ávallt vera mættir klukkustund fyrir áætlaðan keppnistíma. Hár og farði skal þá vera tilbúið.

 

Fyrir mótið

 

  • Athuga í tíma, minnst 2 vikur fyrir mót, hvort þörf sé á að skerpa blöðin á skautunum.
  •  Athuga hvort skautar og reimar séu í góðu ástandi.
  • Athuga að keppnisgjald sé greitt minnst 3 vikum fyrir mót og gengið frá ferðkostnaði sé keppnin utan Reykjavíkur.

 

Á mótum

     

Skautarar Skautafélags Reykjavíkur eiga alltaf að sýna fyllstu íþróttamennsku, tillitssemi og kurteisi á mótum, bæði þeim sem haldin eru í félaginu og sem gestir annarra félaga.
 
Skautarar eiga að mæta í félagspeysum sínum á mót, eigi þeir eina slíka.
 
Búningur þarf að vera þægilegur og passa vel. Athuga skal að ekki sjáist í nærföt.
 
Sokkabuxur eiga ekki að vera götóttar. Gott er að hafa nál og tvinna í töskunni ef gera þarf við. Einnig má nota brúnan heftiplástur til að redda sér.
 
Hár á að vera snyrtilega frá gengið og spennur og skraut vel fest. Detti slíkt af meðan skautari skautar prógrammið sitt getur það kostað minus í einkunnagjöf.
 
Andlitsfarða á að stilla í hóf.
 
Athuga þarf með að skerpa skautana minnst 2 vikum fyrir mót. Ekki er gott að skerpa nokkrum dögum fyrir mót. Skautar þurfa að vera snyrtilegir og er gotta að bera á þá hvítan skóáburð fyrir mót. Á mótum skal passa að rétt sé gengið frá reimum.
 
Keppandi þarf að eiga tvo geisladiska í töskunni sinni með keppnistónlistinni sinni. Skila þarf inn einu eintaki á móttstað og gott er að láta þjálfara fá annað eintak til öryggis.
 
Keppendur eiga að vera mættir á mótsstað klukkustund fyrir mót.

  •  
  • Í töskunni á að vera;
  • Skautar
    Félagspeysa
    Heilar sokkabuxur og auka eintak
    Íþróttaskór
    Fylgihlutir fyrir hár; spennur, teygjur, hárlakk, glimmer o.þ.h.
    Farði
    Skautahlífar og handklæði til að þurrka blöðin.
    Tvö eintök af tónlist á CD
    Sippuband til upphitunar
    Plástrar/hnéhlífar og bunga hlífar fyrir ökkla
    Skóáburður
    Auka reimar
  • Á mótinu skal hafa í huga:
  • Hanskar og hjálmar eru ekki leyfð á mótum.
  • Þegar keppendur hafa lokið keppni er það góður siður að hvetja félagið sitt með því að mæta á pallana.
  • Tilkynna skal forföll með þriggja vikna fyrirvara. Sé skautari veikur á mótssdag getur hann framvísað læknisvottorði til að fá keppnisgjaldið endurgreitt.