Birkir – Skautafélag Reykjavíkur

Áramótaviðtal við Richard
Ef fólk rýndi einungis í tölurnar þá myndi það sjálfsagt komast að þeirri niðurstöðu að Skautafélag Reykjavíkur gangi illa á öllum sviðum íshokkís um þessar mundir. En fyrir þau sem fara á leiki liðsins, hafa gaumgæft breytingar á leikmannahóp, aldur liðsmanna o.s.frv. þá skýrir það að hluta til gengi liðsis. En það er engin betri en þjálfarinn í að kasta ljósi á hvað sé á seyði í leik og „menningu“ SR, meistaraflokks karla. SRhokkí lagðist yfir liðsmálin með Richard Tahtinen á dögum, og komst m.a. að því – eins og svo oft áður – að framtíðin er björt.

Um markmið liðsins á þessu leiktímabili

Fyrir það fyrsta þá er eitt aðalmarkmiða okkar að ná að tileinka okkur hugarfar sem fókusr sérstaklega á það sem við erum að gera akkúrat núna, þ.e.a.s. að á leikdögum þá hugsum við bara um hann og þá litlu hluti sem við verðum að gera rétt til að ná sem bestum árangri það skiptið. Og gera þá hluti rétt. Við viljum sömuleiðis beina athygglinni að því kerfi sem við erum að þróa og hegðun okkar og viðbrögðum við ólíkum hlutum sem koma fyrir í leik.  Meðal þess sem við erum að fókusa á núna er að minnka atvik þar sem við missum pökkin til andstæðingsins á hættulegum stöðum. Sömuleiðis erum við að byggja á hraða, viljum vera fyrsti í pökkinn þegar hann er laus. Við viljum vinna návígi og takmarka þann tíma sem við spilum einum færri vegna villuvandræða.

SR hefur vermt botn deildarinnar lengi. Hvernig er mórallinn hjá liðinu?

Það gefur auga leið að við viljum alls ekki verma botninn og sú staða getur haft mikil áhrif á öll lið í þannig stöðu. Ein eins og ég sagði áðan, þá setjum við miðið á verkefni liðsins frá degi til dags og njóta þess sem við gerum vel og gæta þess að hafa gaman. Þetta þýðir þó ekki að við séum ánægðir með stöðuna. Þetta þýðir að mórallinn í liðinu er ekki háður því hvort við erum að vinna eða tapa. Mórallinn er góður þessa dagana.

Um síbreytilegar línur og samanburð við önnur lið

Það er mín upplifun að þetta lið hafi mátt yfirstíga ýmislegt á undanförnum ár, að töluverðu leiti vegna þess að fyrrverandi leikmenn hafa annað hvort hætt eða fært sig um set til annara liða, hér og að heiman. Engir leikmenn í deildinni hafa mætt sömu áskorunum og ungu strákarnir í SR. Að mínu viti eru þessir strákar þeir seigustu og  intrinsically motivated individuals in the league.  Að því sögðu er mikil vinna framundan og um það snýst þetta tímabil að miklu leiti; að læra meira um sálfræði- og leikskipulagslegu hlið leiksins. Útlitið er gott því Skautafélag Reykjavíkur er samstíga í að þróa þennan hóp til framtíðar og tengja við starfið í yngri flokkunum með samfellu í huga. Úr yngri flokkunum koma íshokkímenntaðari einstaklingar en áður.

Tímabilið til þessa og að vera aftur SR-ingur

Það er frábært að vera kominn aftur. Tímabilið hefur verið áhugavert og erfitt til þessa. Augljóslega felst áskorun í því að missa svona mikið af leikmönnum skömmu áður en leiktíðin hófst. Við byrjuðum veturinn með góðum sigri. Í kjölfarið komu ósigrar, misstórir þó. Hvað sem því líður þá var „kommbakkið,“ í leknum gegn Birninum 25. október, eitthvað sem sýnir getuna sem býr í liðinu. Þótt tiltölulega skammt sé liðið á deildina höfum við þegar upplifað alla mögulegar útkomur í leikjunum. Nú þurfum við bara að finna fastheldnari milliveg frá leik til leikjar og mjaka okkur í átt að fleiri sigrum. Ég trúi að þegar líður á tímabilið mun fólk sjá betur skiðulagt, duglegra og spenntara ungr SR-lið.

Nú klárast senn tveggja vikna leikjapása. Er ekki erfitt að halda sér og liðinu á tánum í þessum hokkíþurrki?

Það er alveg snúið, en með tvo sigra í röð er biðin bærilegri. Frá mínum bæjardyrum séð er þessa pása ágætlega tímasett þar sem flestir leikmanna SR er í einhverskonar skólaprófum um þessar mundir eða að undirbúa þau.

Kvisast hefur út að Bjarki Reyr, fyrirliðinn okkar, muni ekki klára tímabilið og bráðlega hverfi hann af landi brott í hreimsreisu. Þetta er enn ein blóðtakan.

Að missa Bjarka er þungt. Hans verður sárt saknað. Hann er einn af okkar fáu landsliðsmönnum um þessar mundir. Hann er áræðanlegur leikmaður sem getur spilað í báðar átti, traustur í vörn og sókn. Og hann er fyrirliðinn okkar. Við verðum að reyna að vera sveigjanlegir og nota hugmyndaflugið til þess að fylla í skarðið sem hann mun skilja eftir sig.

Takk fyrir spjallið, þjálfi. Eitthvað að lokum?

Bara, við erum afskaplega þakklátir fyrir stuðningin sem við fáum frá fólki á pöllunum þrátt fyrir að liðið sé að upplifa erfiða tíma. En í þessu liði er björt framtíð.

VIÐBURÐARRÍK ÆFING: 3.fl, 4.fl OG MFL RENNA SAMAN
Síðastliðinn mánudag endurtók meistaraflokkur SR leikinn frá því í fyrra þegar þeir tóku þátt í æfingu 3. og 4. flokks félagsins. Hefur þessi uppákoma nú fest sig í sessi og á væntanlega eftir að öðlast enn mikilvægari sess á æfingadagatali krakkanna þegar fram líða stundir.

Stigahæst leikmaður meistaraflokks karla, Robbie Sigurðsson, var einn þeirra sem mætti. Gott ef hann var ekki mættur á svellið og klár í slaginn á undan öllum körrunum. SRhokkí hafði það eftir honum að þessi æfing hafi verið krökkunum góð og að þau hafi klárlega notið sín vel og haft gaman. Hokkíhetja Robbie var Mario Lemieux sem gerði garðinn frægan með Pittsburgh Penguins. „Nei, ég fékk aldrei að æfa með honum, hann kom ekki á mína æfingu þegar ég var í þriðja og fjórða flokk.“ Robbie sagðist þó hafa verið heppinn með að geta fylgst með hetjunni í sjónvarpinu. „Ég skautaði og æfði alltaf með eldri leikmönnum sem ég leit upp til og það ýtti mér lengra til að gera betur,“ sagði þessi vinsæli SR-ingur að lokum. En það er einmitt eitthvað sem ungur SR-ingarnir tengja við og fengu kost á að gera á þessari æfingu.

Jóhann Már Kristjánsson spilar með 4. flokk SR. Hann var að vonum eldhress með uppátækið. Hann vildi spila oftur við stóru gaurana. „Ég hef áður spilað við einhverja þeirra en alls ekki alla.“ Hann segir meistaraflokkinn ekki hafa verið þarna til að kenna þeim yngri eitthvað, heldur meira til að hafa gaman og kynnast. Hann vill líka meina að Miloslav Račanský og Daníel Steinþór hafi verið manna ferskastir á æfingunni. Jóhanni fannst mjög gaman þegar meistaraflokkur spilaði gegn þeim, „þeir spiluðu með öfugan boga miðað við það sem þeir spila venjulega með. Ég hefði viljað að þeir spiluðu með venjulegum boga.“ Greinilegt að Jóhann vill engan afslátt þegar hann tekst á við andstæðinga sína!

Arnar Grant, annar markvarða meistaraflokks, lét mikið að sér kveða á þessari eftirminnilegu æfingu. Alltaf stutt í grínið, og frammistaða hans í vítaskotskeppninni stóð upp úr hjá mörgum. „Þetta voru svona spari markvörslur,“ sagði hann kíminn. Hann segir þetta flipp sem hann hafi þróað. „Til dæmis þegar ég reyni að verja eins og ég sé handboltamarkvörður og þegar ég fór í öfuga hanska.“ En það flipp sem honum finnst sjálfum skemmtielgast er þegar hann hermir eftir markvarðarstíl Martin nokkurs Brodeur. Sá kappi er atkvæðamesti markvörður NHL frá upphafi. Arnar segir hinn Fransk-Kanadíska markmann hafa verið af gamla skólanum og þekktur fyrir ævintýraleg tilþrif.

Þegar Arnar var í 4. flokk þá gafst honum ekki kostur á að fá svona flotta gesti á æfingu og lagði hann því sérstaka áherslu á að krakkarnir skemmtu sér. Hann trúir að svona æfingar efli andann. „Mikilvægt að fá að kynnast yngri krökkunum. Það er sönn ánægja fyrir okkur og þau.“

Brynhildur Hjaltested spilar í 4. flokki hún var ekki svikinn. Henni þótti mjög áhugavert að fá þessa kalla á æfingu til sín, en hún hafði ekki fyrr tekið þátt í neinu svona. Hún segist hafa lært ýmislegt af meistaraflokkshetjunum. Henni þótti Miloslav skemmtilegastur. Um leikinn gegn stóru strákunum sagði hún, „það var það fyndnasta í heimi þeir eru sannkallaðir meistarar. En líka svo áhugasamir og efnilegir.“

Það er því ljóst að næstu æfingar af þessu tagi verður beðið með mikilli eftirvæntingu og alls ekki ólíklegt að þar muni eitthvað koma á óvart. Áfram SR!

Tveggja marka tap SR gegn Birninum
Þriðjudaginn 6. desember mættu stelpurnar okkar Birninum í annað skiptið í vetur. Fyrir leikinn voru SR sigurstranglegra liðið, með fleiri stig í deildinni og á ágætis flugi. Áhorfendur voru á því að þær hefðu átt að vinna leikinn, því færin og skotin voru mörg. En allt kom fyrir ekki. Björninn verndaði forystu sína og fór með öll stigin yfir í Grafarvoginn.

Álfheiður Sigmarsdóttir skóf ekki af hlutinum eftir leik og taldi sjálfa sig m.a. ábyrga. Hún segir lið sitt nánast ekki hafa verið til staðar helming fyrsta leikhlutar. „Þetta voru mörk sem hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir, bæði fyrir varnarmennina og mig, en svona gerist þegar maður nær sér ekki andlega inní leikinn frá fyrstu sekúndu.“

Bæði mörk Bjarnarins komu einmitt í fyrsta leikhluta. Alexandra Hafsteinsdóttir tekur undir með markmanni sínum. „Við vorum bara ekki alveg vaknaðar epa komnar i gírinn.“ Hún sagði þó að þessi skellur hafi vakið þær og í kjölfarið hafi þær bæði sótt og varist betur.

Jóhanna Bárðardóttir vill einnig meina að liðið hafi verið óvenju lengi í gang, og að óheppni hefði að hluta spilað inn í örlögin. „Eftir annað markið varð leikurinn mjög jafn og spennandi.“

Að hennar mati barðist SR vel og komst í mörg góð færi en pökkurinn vildi ekki inn. „Það er samt alveg á hreinu að við fundum fyrir því að okkur vantaði nokkra sterka leikmenn í liðið frá því við mættum Bjarnarstelpum síðast.“ Erla Jóhannesdóttir var sama sinnis. Að hennar mati var SR ekki lakari aðilinn í leiknum. „Við náðum bara ekki að nýta færin sem við fengum og koma pekkinum í netið.“

„Tvo seinni leikhlutana vorum við þó mættar og áttum nokkur góð skot á mark, en það var bara því miður ekki nóg til þess að ná okkur uppúr gryfjunni sem við grófum okkur í byrjun leiks,“ segir Álfheiður.„Við höldum áfram að byggja upp liðið og mætum öflugar í næsta leik,“ sagði Jóhanna að lokum.

Það er löngu orðið ljóst að það er ómögulegt að berja niður andann og spilagleði SR-kvenna og verður gaman að sjá þær galvaskar í næsta leik. Áfram SR!

Baráttusigur gegn Birninum á föstudag
Á síðasta föstudagskvöld tók SR á móti Birninum í Skautahöllinni.  Björninn er í öðru sæti deildarinnar á eftir Esju með 16 stig og fyrirfram var búist við að SR-ingar myndu eiga erfiðan leik fyrir höndum.  En raunin var allt önnur.  SR-ingar komu skipulagðir til leiks og sýndu mikla vinnusemi og aga í sínum varnarleik gegn frísku liði Bjarnarins sem sótti nær án afláts allar þrjár loturnar. Til marks um sóknarþunga Bjarnarmanna þá fékk Ævar Þór Björnsson á sig 54 skot í leiknum.

Robbie Sigurðsson var drjúgur fyrir SR-inga einsog oft áður og skoraði gríðarlega flott mark um miðja aðra lotu.  Hann var einnig að verki í seinna marki SR þegar hann skaut frá miðju í tómt mark Bjarnarmanna undir lok þriðju lotu.  Hann hefur verið að raða inn mörkum og stoðsendingum í undanförnum leikjum. Þegar SR-hokkí spurði  hvort hann væri í beinu sambandi við hokkíguðina hunsaði hann spurninguna. Ekki mikið fyrir að vera í kastljósinu sem beinist sérstaklega að honum. Varðandi lykilinn að velgengni síðustu tveggja leikja segir hann það einfaldlega vera það að spila eins og lagt er upp með. Maður fárra orða. En hann harmar að næsti leikur sé tvær vikur inn í framtíðina því liðið sé að hitna og er á góðu flugi.

Fyrirliðinn Bjarki Reyr þakkar m.a. markverði sínum, Ævari Björnssyni, sigurinn. „Eigum ævari mikið að þakka. Við mættum bara fullir af orku og spiluðum okkar leik“.

Viktor Örn í vörninni var spurður um álagið með svona fá varnarmenn sér við hlið. „Við gerðum það líka í leiknum á móti SA, en það er mjög erfitt“. Honum fannst allir í liðinu standa sig vel og segir engan hafi gefist upp.

Richard Tahtinen gefur strákunum allan heiðurinn. Hann segir þá hafa aldrei brugðið sér frá leikplaninu og hafa fengið á sig færri brottvísanir en við eigum að venjast. Hann segir þá duglega og baráttuglaða. Varðandi framhaldið segir hann liðið ætla að spila í þessum dúr og halda áfram að leggja áherslu á þau atriði sem lagt hefur verið upp með í allan vetur.

Hér að neðan má sjá viðtal við Ævar Þór Björnsson, markmann meistaraflokks.

MÓRALSKUR STÓRSIGUR SR Á SA
Þegar dómari flautaði til leiks og dúndraði pekkinum á miðju skautasvellsins í Laugardal áttu viðstaddir og þau sem sátu heima ekki von á sérlega miklu. Lítið tap í tvísínum leik með mikilli baráttu SR hefði verið ásættanlegt. Sigur hefði verið óvæntur miðað við gengi liðsins undanfarið, en kærkomin tilbreyting. En markaregn og öruggur stórsigur á Íslandsmeisturum SA, á því áttu sennilega fæstir von. Nema kanski leikmenn Skautafélags Reykjavíkur.

Sjáðu til, lesandi góður. Stuðningsfólk SR hefur staðið þétt við sitt lið í allan vetur, óháð gengi þess. Liðið hefur leikið vasklega, tapaða með naumindum og jú, unnið. En ólánið og ringulreið á svellinu hefur einkennt liðið í of langan tíma fyrir marga. Það mikið reyndar að það var óvenju fámennt í stúkunni í gær. Allir þurfa hlé. En strákarnir okkar notuðu þetta, sem og fleira sem aðeins þeir þekkja, eins og bensín á eldinn. Og þá gerðist eitthvað sem einkennir lið sem getur; þeir unnu örugglega, þeir sýndu á sér nýjar hliðar, þeir þjöppuðu sér saman og umfram allt, þeir gáfu öðrum SR-ingum ástæðu til að koma aftur í Laugardalinn og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Þegar dómari flautaði til leiksloka og liðin skautuðu, móð, í átt að búningsklefum sínum, þá hafði Skautafélag Reykjavíkur komið kexinu níu sinnum í möskvann en norðanmenn aðeins fjórum sinnum.

Viktor Örn Svavarsson, ungur varnarmaður SR, hefur látið mikið að sér kveða í vetur og stigið nokkur skref upp í ábyrgðarstiga SR-kerfisins þar sem hann spilar nú stóra rullu. Viktor, sem skoraði eitt mark í leiknum, er í vetur að fá fleiri mínútur á ís og tekur þátt í kraftspili (powerplay) liðsins. Hann spilar gjarnan á línu með Tómasi Omarssyni og Miloslav Racancky. Við spurðum hvað hafi verið öðruvísi hjá liðinu þetta kvöld en önnur. „Við spiluðum bara stöðurnar okkar og náðum að stilla upp, og svo var lykilatriði að við töluðum meira samann inn á ís“.  Er þá átt við í leiknum sjálfum? Viktor sagði það ekki endilega aðal atriðið, heldur að strákarnir tali af meiri ákefð saman á æfingum. Náist þannig sterkakri samfella milli æfingar og deildarleikja. Varðandi aukin ís-tíma nefnir Viktor að Richard þjálfari sé að gefa sér góða punkta, svo fer hann inn á og gerir sitt besta. Það er greinilega að virka því þjálfari SR notar varnamanninn meira en áður í kraftspil, svo dæmi séu tekin. Spurður um hvort aukinni ábyrgð fylgi ekki pressa, svaraði Viktor svona. „Eins og ég sagði, þá fer ég inn á, held minni stöðu og geri mitt besta“.

Kári Guðlaugsson, aðstoðafyrirliði, skoraði mark í leiknum og átti þrjár stoðsendingar. Hann hafi ætlað að skjóta til að búa til frákast handa Bjarka Rey Jóhannessyni, fyrirliða, og skapa þannig marktækifæri fyrir hann. „Bjarki missti af honum svo ég tók það bara sjálfur,“ og skoraði.

Richard þjálfari þakkar leikmönnum árangurinn, fyrst og fremst. „Þeir náðu ákveðnu jafnvægi milli ákefðar og kænsku sem hélt út leikinn.“

En það var Robbie nokkur Sigurðsson sem húrraði inn stigum fyrir liðið. Hann skoraði heil fimm mörk og átti fjórar stoðsendingar. Þannig bætti hann í Hertz-deildarsarp sinn heilum níu stigum. „Við vorum bara klókir,“ sagði Robbie eftir leikinn. Hann nefnir einnig að liðið hafi talað betur saman. „Sendingarnar voru nákvæmari.“ Undanfarið hafi þeir eytt miklum tíma í sínu eigin svæði og varist, en nú hafi þeir eytt meiri tíma á svæði andstæðingsins. Varðandi breyttar áherslur sagði hann Richard hafa lagt upp með bara tvær sóknalínur og fjóra varnarmenn. „Við tókum leikinn okkar á hærra plan og gáfum mikið í þetta,“ sagði Robbie að síðustu.

LEIKIR HELGARINNAR OG UM SLAKT GENGI UNDANFARIÐ
Það hefur ekki farið framhjá neinum að meistaraflokkur karla hefur átt á brattan að sækja í allan vetur. Eitthvað sem gert var ráð fyrir og margar útskýringar hafa verið gefnar, en eftir tvo leiki þar sem liðið stóð vel í sterkum andstæðingum og hefði jafnvel geta landað sigri eða tveimur, þá er því ekki að neita að stuðningsfólk varð fyrir sárum vonbrigðum með síðasta leik gegn Birninum. Björninn og SR er þekkt fyrir jafnar rimmur hvar allt getur gerst en því var ekki að fara í síðasta leik liðanna. Þvert á móti.

SR mætir Esju næstkomandi Laugardag, 19. nóvember, kl. 18:45. Þar er á ferðinni lið sem flestir segja líklegastir í dolluna í ár. Daginn eftir fær SR Skautafélag Akureyrar aftur í heimsókn, en þeir unnu Esju nokkuð auðveldlega fyrr í vikunni. Þess vegna leikur SRhokkí forvitni á að vita hvað sé að gerast hjá okkar mönnum hvernig þeir ætla inn í leiki helgarinnar.

Þessi leikur var mikil vonbrigði fyrir stuðningsfólk

Richard Tahtinen var fljótur að benda á þá staðreynd að Björninn er stærra og þyngra lið, sem útskýrir að hluta til af hverju SR tapar svona mörgum 1-á-1 baráttum. „Þrátt fyrir það þá þurfum við að vera betri í að nýta hraðann okkar í sókninni og þegar við pressum andstæðinginn á sínu svæði.“ Hann segir einnig að vörnin þurfi að verða klókari og skipulagðari. „Hún er að gefa andstæðingnum allt of mikið pláss og tíma til athafna.“ Þjálfarinn segir þetta eina forsenda þess að liðið vinni leiki.

Fyrir leikinn ætlaði SR að sýna meiri yfirvegun til að forðast skammakrókinn, gæta þess að missa ekki pökkinn og spila betur úr eigin svæði og yfir í sóknina. Ekkert af þessu gekk eftir

Við höfum verið að vinna í öllu ofangreindu í vetur. Þetta er ungt lið og fæstir leikmanna okkar eru með mikla reynslu. Þegar þú ert aðlæra eitthvað nýtt, þá er eftirfarandi yfirleitt trendið; þú spilar eftir bókinni einn leik en í þeim næsta ferðu út fyrir handritið. Vinnan mín felst í því að halda áfram að hamra á sama naglanum þangað til hann er varanlega fastur. Og þá er ég að tala um að halda leiknum einföldum og að við einbeitum okkur að markmiðunum sem við höfum sett okkur.

Robbie Sigurðsson segir að liðið hafi ekki skautað af nægilega mikilli áfergju og verið of seint. Hann vill að þeir leggi harðar að sér til að vinna í 1-á-1aðstæðum og haldi eða nái pekkinum þannig. Varðandi stærðarmun liðann, segir hann að auðvitað skipti það máli,„En hún segir ekki alla söguna. Þú verður að lesa vel í leikinn og spilið og bregðast rétt við.“

Varðandi Esju segir Robbie SR þurfa vera andlega klára og yfirvegaða. En þegar kemur að SA þá þarf liðið hans að vera tilbúið í að leggja enn harðar að sér en áður.

Robbie segist að lokum vera sammála þjálfara sínum um að þau markmið sem SR setti sér gegn Birninum hafi ekki gengið upp. Hann segir ennfremur að liðið verði búið að taka á þessu fyrir helgina.

SR-LEIKIR HELGARINNAR Í HERTZ-DEILDINNI Í ÍSHOKKÍ

Laugardaginn 19. nóvember ESJA – SR kl 18:45 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

Laugardaginn 19. nóvember YNJUR – SR kl 16:30 í Skautahöllinni á Aukureyri.

Sunnudaginn 20. nóvember SR – SA kl 19:00 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

SR TILBÚNAR Í TOPPLIÐ DEILDARINNAR ÞRÁTT FYRIR MEIÐSL
SR-stelpur hafa farið mikinn að undanförnu. Þó svo að toppur deildarinnar sé ekki þeirra, þá eru þær „inn í“ öllum leikjum sem spilaðir eru, eins og sagt er, og svo er stemningin í liðinu fádæma góð og nýjir, ungir spilarar hafa mikinn áhuga á að vera í þessu liði. Það er því ekki ofsögum sagt að framtíðin sé björt hjá meistaraflokki kvenna. En einbeitum okkur að næsta leik liðsins.

Laugardaginn næstkomandi fara stelpurnar okkar í bílferð til Akureyrar og mæta þar erfiðasta liði deildarinnar. SR hefur mætt Ynjum tvisvar sem af er vetri. Fyrri leiknum töpuðu þær með naumindum. Nánar tiltekið með einu marki. Annan leik liðanna unnu Ynjur auðveldlega.

„Við þurfum að leggja okkur allar fram til að standa vel í þeim,“ segir Jóhanna Bárðardóttir, sem spilar á vængnum. Hún segir keppikefli fyrir liðið að hver leikmaður spili þá stöðu sem lagt er upp með. Hún leggur áherslu á að vörnin spili þétt og að þær „taki skotin af“ Ynjum.

Alexöndru Hafsteinsdóttur lýst vel á leikinn og hefur trú á sínu liði. „Ynjurnar eru virkilega sterkar en ef við erum með hausinn á réttum ættum við að geta unnið.“ Eitthvað er um meiðsl í liði SR og nokkrar úr leikmannahópnum spila ekki fyrir norðan. Alexandra segir þjálfarana munu svara þessu með að raða rétt upp. „Ég hef fulla trú á að þetta muni líta eins vel út og hægt er,“ sagði Alexandra að lokum, löðrandi sannfærð í SR-anda, að vanda.

Staðan í Hertz-deild kvenna er þannig að Ynjur eru á toppnum. Ásynjur eru í öðru sæti, SR í því þriðja og Björninn rekur lestina. Jóhanna Bárðar hefur skorað eitt mark, Alexandra er með eitt mark og eina stoðsendingu. Atkvæðamest SR-inga er Brynhildur Hjaltested með tvö mörk og þrjár stoðsendingar.

MJÓTT Á MUNUM Á AKUREYRI
Þrátt fyrir að SR dvelji í kjallara Hertz-deildarinnar í íshokkí um þessar mundir þá verður seint sagt um okkar menn að þeir gefi sig vonleysinu á vald. Þvert á móti. Fyrir hvern einasta leik er góður mórall í liðinu og sérstaklega fyrir Akureyraferðina í gær, þar sem allir virtust fókuseraðir á markmiðið að gera SA lífið leitt og vinna leikinn. Aðstoðarfyrirliðinn Kári Guðlaugsson sagði liðið hugsa ekki um stórt tap eftir síðasta leik við SA. Og klykkti svo út með því að segja liðið virkilega peppað fyrir viðureignina. Auðvitað!

Richard Tahtinen þjálfari tók í sama streng. „Þegar pökkurinn snertir ísinn í fyrsta skiptið í kvöld þá er allur fókusinn á þeim leik og athygli okkar berst að því sem raunverulega skiptir máli í kvöld, sem eru smáatriðin, kerfið sem við viljum spila og hvernig við högum okkur á ísnum.“

Stuttu áður en dómari ræsti leikinn sagði Bjarki Reyr fyrirliði að það væri „virkilega góð stemning í liðinu eftir hörku rútuferð. Við stefnum að sjálfsögðu á sigur!“ Og úrslitin bera þess glöggt vitni. SA vann með tveimur mörkum gegn einu marki Kára Guðlaugs. Tæpara mátti það ekki standa.

SR-ingar tóku sig á í þessum leik hvað villuvandræði varðar. Svo mikið reyndar að enginn sat í skammakróknum í síðust lotunni, en samt börðust þeir hart til að jafna. Richard þjálfari hafði einmitt lagt upp með slíkan aga í huga. „Strákarnir mega ekki láta mótherja sína koma sér úr andlegu jafnvægi og enda þannig í skammakróknum vegna pirrings og skilja þá sem sem á ísnum eru eftir einum færri.“ Þetta gekk svo upp.

En kraftspilsmark Andra Mikaelssonar í annari lotu hélt út leikinn. Tómas Ómarsson lék ekki með SR í þessum leik og munar um minna hvað vörnina snertir. Vonandi fáum við hann til baka sem fyrst.

Bjarki Reyr var nokkuð brattur í lok leiks og þrátt fyrir ósigursóbragð þá teldi hann tilfinninguna í liðinu góða.

„Við erum nokkuð sáttir með leikinn í heildina. Auðvitað lika fullt sem má bæta og eftir svona jafnan og skemmtilegan leik getur sigurinn alltaf endað báðum megin,“ sagði fyrirliðinn keikur að lokum.

Nánar um leikinn hér

SA-SR leikur 8. nóvember 2016

Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Fyrri hluti Íslandsmóts hjá 4.flokki lokið
Síðastliðna helgi fór fram fyrsti hluti íslandsmóts í fjórðaflokksliðum landsins. Að þessu sinni voru SR liðin tvö og ber það þess glöggt vitni að yngriflokkastarf félagsins er að skila góðum árangri. Undir fána SR spiluðu samnefnt lið og svo SR Fálkar. Mótið, sem fram fór í Skautahöllinni í Laugardalnum, er hið fyrsta af þremur. Liðið sem stendur uppi með besta árangurinn eftir mótin þrjú mun hampa Íslandsmeistaratitlinum.

SR Fálkar unnu þrjá leiki en tapaði einum gegn SA Víkingum. SR tapaði báðum leikjum sínum við SA en unnu Björninn í tvígang. Flottur árangur hjá okkar fólki. Verður fróðlegt að sjá hvort þau næli sér í dolluna í lok tímabils. Við höfum tröllatrú á því. En það sem skiptir mestu er að skemmta sér vel og gera sitt besta. Það finnst okkur mest um hjá Skautafélagi Reykjavíkur!

SRhokkí náði tali af Arnari Smára Karvelssyni, hinum 11 ára gamla miðjumanni. Hann spilar fyrir SR Fálka og gerir það vel. Hann sagðist ánægður mið liðsheild Fálka, „Við spiluðum saman eins og lið.“ Hann talaði ennfremur um að vörnin hafi bætt sig mikið og það sé mikilvægt. Varðandi hluti sem þarf að vinna í til að ná betri árangri, nefndi hann skiptingarna. Arnar vill að þær séu styttri. Góð pæling hjá okkar manni.

Að síðustu spurðum við hvernig hann ætli að undirbúa sig fyrir næstu lotu íslandsmótsins. Það stóð ekki á hnitmiðuðu svarinu. „Ég ætla að æfa mig eins mikið og ég get til að verða hraðari.“ Flugbeittur og ákveðinn, hann Arnar Smári.

Framtíðin er björt hjá öllum SR krökkum. Áfram SR!

Myndir: Elín María og Arna Rúnars.

SR-MFLKVK í öðru sæti á Reykjavík Ice-Cup!
Andinn heldur áfram að gefa í samheldnu stemmningsliði Skautafélags Reykjavíkur, meistaraflokks kvenna. Síðust helgi lauk hinu árlega Reykjavík Ice-Cup þar sem stelpurnar okkar gerðu sig gildandi.

Hin Kanadíska Deirdre Norman, stofnandi The Women Of Winter, leggur ríka áherslu á að halda við hokkítengingu Íslands og Kanada, en hún var í forgöngu fyrir því að fyrsta Bandaríska liðið tæki þátt í mótinu í ár. Mótinu var að þessu sinni skipt í tvo styrkleikaflokka. Einn fyrir áhugamannalið, en hinn fyrir hokkífólk sem hefur spilað í erfiðari og dýpri deildum. Íslensku liðin tilheyra fyrri flokknum.

Valkyrjur SA.

SR-ingar unnu fyrsta leikinn, sem var gegn Chinook Ice frá Kanada. Lokatölur 1 – 0. Því næst lutu þær í lægra haldi, 1 – 6,  fyrir Seattle Seacups. Valkyrjur unnu þær 3 – 1 og enduðu svo í úrslitarimmu við Seattle liðið. Þar mættu okkar konur grimmar til leiks enda mun mjórra á munum þegar dómari flautaði til leiksloka. Seacups skoruðu eina mark þess leiks. Vel af sér vikið hjá SR!

Jóhanna Bárðardóttir var að vonum ánægð með mótið. Hún benti á að mótið væri meira til gamans og til þess að styrkja tengslin og fagna saman ástríðu kvenna á íshokkí. „Þetta er alltaf hrikalega skemmtilegt. Allir eru þarna bara til að skemmta sér og spila hokkí. Þessar konur sem koma að utan eru yfirleitt frá þrítugu og upp úr. Til dæmis var einn markmaður í kanadíska liðinu 64 ára. Hversu svalt!“