Bein útsending – Skautafélag Reykjavíkur

Hörkuleikur í Grafarvogi
Á þriðjudagskvöld heimsóttu SRingar Björninn upp í Grafarvog.

SRingar komu full afslappaðir inn í leikinn og Bjarnarmenn komust yfir, einum fleiri á ís, með marki Kristjáns Alberts þegar rúmar ellefu mínútur voru liðnar af leiknum. Leiðinda atvik varð þegar Robbie Sigurdsson, einn af lykilmönnum okkar, virtist fá kylfu í andlitið og skarst á tungunni og þurfti að bruna með hann á slysadeild. Hann átti þó eftir að láta til sín taka síðar í leiknum. Þegar hálf mínúta var eftir af fyrsta leikhluta koma Úlfar Andrésson Bjarnarmönnum síðan í 2-0. Afar klaufalegt hjá okkar mönnum þar sem þeir voru einum fleiri á ísnum þegar þetta gerðist.

Eitthvað hefur Richard þjálfari látið drengina heyra það í leikhléinu þar sem menn virtust koma mun betur stemmdir til leiks í öðrum leikhluta. Endurkoma Robbie af slysó, og nú með heila grind fyrir andlitinu, hafði örugglega jákvæð áhrif. Leikhlutinn var þó nokkuð tíðindalítill en létu liðsmenn beggja liða kasta sér í refsiboxið til skiptis. SR náði að verjast þrír á móti fimm í næstum tvær mínútur, glæsilega gert.

Þriðji leikhluti leiksins verður vonandi til þess að kynda aðeins í mönnum og bæta sjálfstraustið eftur heldur magurt gengi undanfarið.

Skemmst er frá því að segja að Bjarnarmenn bættu við tveimur mörkum á fyrst fjórum mínútunum. Útlitið var vægast sagt ekki gott. Bjarnarmenn komu sér í veruleg vandræði með því að láta reka sig út af og náðu SRingar að setja inn mark 5 á móti 3. Þar var að verki Robbie Sigurdsson með aðstoð Jan Kolibar og Milosar.

Fjórum mínútum síðar kom Herman Oldrich pekkinum yfir línuna eftir mikla þvögu í teig Bjarnarmanna. Staðan 4-2. Hörku kraftspils mark hjá strákunum.

Áfram var sótt og Jan skorar glæsilegt bakhandarmark af stuttu færi. 4-3 og hjörtu SRinga á pöllunum farin að slá heldur hratt.

Bjarnarmönnum tókst síðan að næla sér í tvær brottvísarnir með stuttu millibili og SR því tveim mönnum fleiri. Skemmst frá því að segja að SRingar voru staðráðnir í að nýta sér liðsmuninn og Jan skoraði sitt annað mark í leiknum með skoti af nokkru færi. 4-4 og innan við mínúta eftir.

Þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum slapp Falur bjarnarmaður í gegn en Ævar sá við honum og í því var flautað og framlenging raunin.

Í framlengingunni sóttu liðin til skiptis og bæði hefðu með sönnu getað gert út um leikinn. Það hafðist þó ekki og vítakeppni raunin.

Ævar varði vítið frá Fal og Guðna svo átti Robbie skot í þverslána, Brynjar Bergmann skoraði fyrir Björninn og Ómar, markvörður Bjarnarins varði frá Jan Kolibar. Það var síðan Úlfar Andrésson sem skoraði sigurmarkið.

Loksins sýndu okkar menn sitt rétta andlit og karakter. Það er alltaf ferlega fúlt að tapa, en miðað við gengið undanfarið þá fögnum við stiginu og vonum til þess að þetta blási mönnum í brjóst.

Nú tekur við tveggja vikna leikja pása hjá okkur. Ágætt að fá smá tíma til að fínstilla þau atriði sem þarf að laga.

myndina sem fylgir fréttinni tók Gunnar Jónatansson

Erfið helgi að baki hjá SR-ingum
Mikið var um að vera hjá SR-ingum um nýliðna helgi.  Meistaraflokkur karla byrjaði á því að mæta Esju-mönnum í Skautahöllinni í Laugardal, þá sem gestalið því þetta var heimaleikur Esju.  Leikurinn byrjaði nokkuð vel fyrir okkar menn þar sem þeir Styrmir Maack og Miloslav Rachansky okkur yfir í fyrstu logu en Esju-menn náðu að minnka muninn um miðja lotu með marki, á yfirtölunni, hjá Pétri Maack (jú, sem er stóri-bróðir hans Styrmis).   Esju-liðar voru strerkari aðilinn í annari lotu þar sem þeir Egill Þormóðsson og Konstantin Sharapov náðu yfirhöndinni fyrir Esju en Kári nokkuð Guðlaugsson náði síðan að jafna metin rétt í blálok annarar lotu með lúmsku skoti.  Snemma í þriðju lotu fá SR-ingar á sig refsingu og þurftu að spila manni færri í tvær mínútur.  Esju-menn létu ekki bjóða sér það tvisvar og náðu að auka enn á forskotið með marki frá Ólafi Björnssyni.  Stuttu fyrir leikslok náðu síðan Esju-liðar að skora fimmta mark leiksins og gera þannig út um leikinn og staðan 5 – 3 því raunin.

Stelpurnar stóðu í ströngu!

SR-stelpur tóku á móti SA-Ynjum eftir karlaleik Esju og SR.  SR-stelpur sýndu fína baráttu í upphafi fyrsta leikhluta en síðan fór að síga á ógæfuhliðina.  SA-Ynjur léku við hvern sinn fingur og gáfu SR-stelpum fá tækifæri og náðu að komast í 0 – 4 áður en Gerður Guðmundóttir náði að minna muninn örlítð fyrir lok lotunnar.  Í upphafi annarar lotu var þar aftur áðurnefnd Gerður sem skorði fínt mark og minnkaði muninn enn frekar.  En næstu tvö mörk voru Ynju mörk þar sem Sunna og Silvía Björgvinsdættur voru potturinn og pannan í þeim mörkum.   Brynhildur Hjaltested skoraði síðan glæsilegt mark fyrir SR-stelpur, þegar þær spiluðu á yfirtölunni, og minnkaði muninn aðeins fyrir SR.  En síðasta lota var lota Ynjanna og náðu þær að skora alls 3 mörk án þess að SR næði að svara.  Því til viðbótar áttu SR-stelpur í villuvandræðum í lotunni sem vó þungt í þeirra leik.

Álfheiður Sigmarsdóttir, markvörður, varði eins og berserkur og stóð af sér orrahríð af skotum eins og best mátti vera. “Við eigum til að gleyma því að við erum gott lið, og hafa ekki sjálfstraustið í að spila af fullri getu. Við eigum meira inni” sagði Álfheiður að leik loknum.

Jóhanna bárðar, var að vonum raunsæ. “Þó að við séum að standa betur í hinum liðunum en við höfum gert eigum við langt í land með að standa jafnfætis þeim.” Jóhanna segir SR-inga ekki láta ósigurinn á sig fá. Þær hafi skorað þrjú mörk, sem væri jákvætt. “Við höldum bara áfram að vinna í þeim hlutum sem við þurfum að vinna í,” sagði hún að lokum.

Til gamans má horfa á hluta af öðrum leikhluta SR og Ynja í VR-upptöku á Youtube.

Fyrsti sigur í kvennaflokki SR um langa hríð!
Í gærkvöldi mættu Bjarnarstelpur bíspertar og klárar til leiks.  SR-stelpur voru þar einnig klárar í slaginn.  SR-stelpur hafa verið á mjög góðri siglingu á undanfögnum vikum þarm sem þjálfari þeirra Rory Geneja hefur verið að vinna með hópinn að föstum leikatriðum.  Einnig hafa bæst í hópinn nokkrar frískar stelpur frá öðrum líðum og nokkrar snúið aftur.  Svo á auðvitað minnast á leik þeirra stúlkna sem eru uppaldar í SR, já mikil ósköp.  SR-stelpur stimpluðu sig inn á tólftu mínútu þegar Inga Sigurgeirsdóttir(#19) skorði fyrsta mark SR-stúlkna í leiknum með aðstoð frá Guðbjörgu Grönvold og Alexöndru Hafsteinsdóttur.  Rétt fyrir lok lotunnar náði Jóhann Bárðardóttir (#21) að auka enn á forystuna og koma SR-stúlum í stöðuna 2 – 0 með aðstoð frá Laura Murphy.  Í annari lotu var mikið jafnræði með liðunum en SR-stúlur virtust gefa örlítið eftir.  Bjarnarstúlkur gengu á lagið og Harpa Benediktsdóttir minnkaði muninn fyrir Björninn með aðstoð frá Hrund Thorlacius.  Rétt um miðja þriðju lotu, eftir mikið happa-atvik, þar sem pökkurinn skoppaði af battanum og beint í hendurnar á Hörpu Benediktsdóttur sem skorði í autt horn í marki SR-stúlkna.  Staðan orðin þá 2 – 2 og allt í járnum.   Þrátt fyrir góðar sóknir beggja aðila vildi pökkurinn ekki inn.  Í framlengingu áttur SR-stelpur gríðarlega gott færi sem þær náðu ekki að nýta og var því niðurstaðan sú að þennan leik þyrfti að útkljá með vítakeppni.  Laura Murphy reið á vaðið og skoraði eina mark vítarimmunar og tryggði SR sigurinn, líklega þann fyrsta um langa hríð.

Streymt á Facebook!

Gerð var sú tilraun í gærkvöld að streyma leik kvöldsins á Facebook og var leikurinn jafntfram tekinn upp. Áætlað að rúmlega 2000 manns hafi séð færsluna og rétt rúmlega 600 spilarnir voru gerðar á leiknum.  Þáttaka áhorfenda var skemmtileg viðbót við annars ágætlega heppnaða tilraun.  Hægt er að sjá leikinn í heild sinni hér að neðan.