Ynjur – Skautafélag Reykjavíkur

Leikur í kvöld og um helgina!
Í kvöld mun 2.flokkur SR skunda upp í Egilshöll og spila fyrsta leik tímabilsins í öðrum flokki.  2.flokkur er búinn að vera í stífum æfingum hjá Kára Guðlaugssyni og lýtur hópurinn bara nokkuð vel út.  Leikurinn hefst kl.19:45, stundvísalega.  Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta í Egilshöll og hvetja strákana áfram.

Um næstu helgi verður töluverður handagangur í öskunni þar sem það verða alls 3 leikir hjá SR. Föstudaginn mætir SR Esju í Laugardalnum kl.19:45, RVK-stúlkur mæta SA Ynjum í Egilshöll kl.16:30 og kl.18:00 á laugardeginum 9. sept mun SR taka á móti SA Jötnum í Skautahöllinni í Laugardal kl.18:00.

Allir félagsmenn eru hvattir til að skella sér á þessa leiki og hvetja okkar fólk áfram!

Meistraflokkur kvenna lokið keppni
Meistaraflokkur kvenna hjá SR hefur lokið keppni þetta tímabilið með alls 2 stig eftir sína leiki.  Ljóst er að Ásynjur og Ynjur hjá Akureyri leika til úrslita þetta árið þar sem þær telfdu fram tveimur liðum í Íslandsmóti í ár.  Kvennastarf SA er til mikilla fyrirmyndar og eru þær stúlkur sem þar æfa gríðarstekar á svellinu og erfiðar að eiga við og okkar stúlkur fundu vel fyrir því í síðustu leikjunum.  Vonir standa til að breytingar verði á starfi kvennaflokksins hjá SR á næsta tímabili sem muni efla kvennastarfið hjá SR, í Reykjavík og þar með landinu öllu um ókomin ár.  Myndin er tekin í síðasta leik SR-kvenna á móti Ynjum þriðjudaginn 21. febrúar.

LEIKIR HELGARINNAR OG UM SLAKT GENGI UNDANFARIÐ
Það hefur ekki farið framhjá neinum að meistaraflokkur karla hefur átt á brattan að sækja í allan vetur. Eitthvað sem gert var ráð fyrir og margar útskýringar hafa verið gefnar, en eftir tvo leiki þar sem liðið stóð vel í sterkum andstæðingum og hefði jafnvel geta landað sigri eða tveimur, þá er því ekki að neita að stuðningsfólk varð fyrir sárum vonbrigðum með síðasta leik gegn Birninum. Björninn og SR er þekkt fyrir jafnar rimmur hvar allt getur gerst en því var ekki að fara í síðasta leik liðanna. Þvert á móti.

SR mætir Esju næstkomandi Laugardag, 19. nóvember, kl. 18:45. Þar er á ferðinni lið sem flestir segja líklegastir í dolluna í ár. Daginn eftir fær SR Skautafélag Akureyrar aftur í heimsókn, en þeir unnu Esju nokkuð auðveldlega fyrr í vikunni. Þess vegna leikur SRhokkí forvitni á að vita hvað sé að gerast hjá okkar mönnum hvernig þeir ætla inn í leiki helgarinnar.

Þessi leikur var mikil vonbrigði fyrir stuðningsfólk

Richard Tahtinen var fljótur að benda á þá staðreynd að Björninn er stærra og þyngra lið, sem útskýrir að hluta til af hverju SR tapar svona mörgum 1-á-1 baráttum. “Þrátt fyrir það þá þurfum við að vera betri í að nýta hraðann okkar í sókninni og þegar við pressum andstæðinginn á sínu svæði.” Hann segir einnig að vörnin þurfi að verða klókari og skipulagðari. “Hún er að gefa andstæðingnum allt of mikið pláss og tíma til athafna.” Þjálfarinn segir þetta eina forsenda þess að liðið vinni leiki.

Fyrir leikinn ætlaði SR að sýna meiri yfirvegun til að forðast skammakrókinn, gæta þess að missa ekki pökkinn og spila betur úr eigin svæði og yfir í sóknina. Ekkert af þessu gekk eftir

Við höfum verið að vinna í öllu ofangreindu í vetur. Þetta er ungt lið og fæstir leikmanna okkar eru með mikla reynslu. Þegar þú ert aðlæra eitthvað nýtt, þá er eftirfarandi yfirleitt trendið; þú spilar eftir bókinni einn leik en í þeim næsta ferðu út fyrir handritið. Vinnan mín felst í því að halda áfram að hamra á sama naglanum þangað til hann er varanlega fastur. Og þá er ég að tala um að halda leiknum einföldum og að við einbeitum okkur að markmiðunum sem við höfum sett okkur.

Robbie Sigurðsson segir að liðið hafi ekki skautað af nægilega mikilli áfergju og verið of seint. Hann vill að þeir leggi harðar að sér til að vinna í 1-á-1aðstæðum og haldi eða nái pekkinum þannig. Varðandi stærðarmun liðann, segir hann að auðvitað skipti það máli,“En hún segir ekki alla söguna. Þú verður að lesa vel í leikinn og spilið og bregðast rétt við.”

Varðandi Esju segir Robbie SR þurfa vera andlega klára og yfirvegaða. En þegar kemur að SA þá þarf liðið hans að vera tilbúið í að leggja enn harðar að sér en áður.

Robbie segist að lokum vera sammála þjálfara sínum um að þau markmið sem SR setti sér gegn Birninum hafi ekki gengið upp. Hann segir ennfremur að liðið verði búið að taka á þessu fyrir helgina.

SR-LEIKIR HELGARINNAR Í HERTZ-DEILDINNI Í ÍSHOKKÍ

Laugardaginn 19. nóvember ESJA – SR kl 18:45 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

Laugardaginn 19. nóvember YNJUR – SR kl 16:30 í Skautahöllinni á Aukureyri.

Sunnudaginn 20. nóvember SR – SA kl 19:00 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

SR TILBÚNAR Í TOPPLIÐ DEILDARINNAR ÞRÁTT FYRIR MEIÐSL
SR-stelpur hafa farið mikinn að undanförnu. Þó svo að toppur deildarinnar sé ekki þeirra, þá eru þær “inn í” öllum leikjum sem spilaðir eru, eins og sagt er, og svo er stemningin í liðinu fádæma góð og nýjir, ungir spilarar hafa mikinn áhuga á að vera í þessu liði. Það er því ekki ofsögum sagt að framtíðin sé björt hjá meistaraflokki kvenna. En einbeitum okkur að næsta leik liðsins.

Laugardaginn næstkomandi fara stelpurnar okkar í bílferð til Akureyrar og mæta þar erfiðasta liði deildarinnar. SR hefur mætt Ynjum tvisvar sem af er vetri. Fyrri leiknum töpuðu þær með naumindum. Nánar tiltekið með einu marki. Annan leik liðanna unnu Ynjur auðveldlega.

“Við þurfum að leggja okkur allar fram til að standa vel í þeim,” segir Jóhanna Bárðardóttir, sem spilar á vængnum. Hún segir keppikefli fyrir liðið að hver leikmaður spili þá stöðu sem lagt er upp með. Hún leggur áherslu á að vörnin spili þétt og að þær “taki skotin af” Ynjum.

Alexöndru Hafsteinsdóttur lýst vel á leikinn og hefur trú á sínu liði. “Ynjurnar eru virkilega sterkar en ef við erum með hausinn á réttum ættum við að geta unnið.” Eitthvað er um meiðsl í liði SR og nokkrar úr leikmannahópnum spila ekki fyrir norðan. Alexandra segir þjálfarana munu svara þessu með að raða rétt upp. “Ég hef fulla trú á að þetta muni líta eins vel út og hægt er,” sagði Alexandra að lokum, löðrandi sannfærð í SR-anda, að vanda.

Staðan í Hertz-deild kvenna er þannig að Ynjur eru á toppnum. Ásynjur eru í öðru sæti, SR í því þriðja og Björninn rekur lestina. Jóhanna Bárðar hefur skorað eitt mark, Alexandra er með eitt mark og eina stoðsendingu. Atkvæðamest SR-inga er Brynhildur Hjaltested með tvö mörk og þrjár stoðsendingar.

SR-stúlkur gegn SA-Ynjum næsta laugardag!
Stelpurnar okkar eru á miklu flugi þessa dagana eftir frækinn sigur gegn Birninum í síðasta leik liðanna, og virðist stemningin í herbúðum SR vera í mikilli uppsveiflu, öðrum til eftirbreytni. Ásynjur Akureyrar hafa verið í yfirburða stöðu í íshokki um árabil en fyrir norðan ríkir mikil og góð hokkíhefð.  Svo mikil reyndar að í ár tefla Akureyringar í fyrsta sinn fram tveimur liðum, Ynjum og Ásynjum. Því er það mikið keppikefli fyrir okkar stelpu að hrekkja þær hressilega og stela af Ynjum stigum.

Ynjur eru með 3 stig í deildinni og deila því fyrsta sætinu með Ásynjum, en SR er í öðru sæti með 2 stig.

Erla Guðrún, varnamaður, er vel stemmd fyrir leikinn. Hún segir SR þurfa að passa sig á því að enda ekki í boxinu fyrir óþarfa brot. Ennfremur segir hún að ein af aðal áskorunum liðsins sé að spila hratt hokkí allar períódurnar.  Þetta er í annað sinn sem SR mætir Ynjum í vetur. “Ég held að það sé alveg raunhæft markmið og við förum klárlega í þennan leik til þess að vinna hann og bæta upp súrt tap í fyrri leiknum okkar við ynjur þar sem við töpum með einu marki eftir að hafa verið yfir fyrir síðasta leikhluta.” segir Erla að lokum.

Leikurinn hefst klukkan 21:30 og er frítt inn.

Áfram SR!

SR-stelpurnar eru með sína eigin Facebook síðu, fylgið þeim hér!