Meistaraflokkur – Skautafélag Reykjavíkur

Helgi Páll og Ævar Þór þjálfa meistaraflokk SR
Helgi Páll Þórisson var í dag kynntur til sögunnar sem nýr aðalþjálfari karlaliðs SR. Honum til aðstoðar verður Ævar Þór Björnsson.

Í byrjun mánaðarins óskaði Milos eftir því að stíga til hliðar sem þjálfari karlaliðs SR og einbeita sér 100% að uppbyggingarstarfi í yngri flokkum félagsins. Honum fannst hann ekki geta sinnt báðum hlutverkum nægilega vel en mikil og stöðug fjölgun hefur verið í barnastarfinu sem krefst alls hans tíma og athygli. Kári aðstoðarþjálfari ákvað einnig að stíga til hliðar. Við þökkum þeim fyrir þeirra störf fyrir félagið en við njótum áfram þeirra krafta sem leikmanna liðsins.

Árangur liðsins í upphafi tímabilsins hefur ekki verið eftir væntingum sem eflaust má rekja til óstöðugleika í þjálfaramálum í ár. Nýja þjálfarateymið tekur strax við og byrjar að vinna með liðinu að því að fínstilla leik þess. Við erum með frábæran leikmannahóp og eigum heilmikið inni eins og sést hefur í jöfnum og fjörugum leikjum Herzt-deildarinnar.

Helgi Páll Þórisson er íshokkíáhugamönnum að góðu kunnur, gamlareyndur SR-ingur sem er hokinn af reynslu. Hann hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari sem leikmaður með SR, þar af tvisvar sem fyrirliði og aðstoðarfyrirliði. Helgi spilaði 10 ár með landsliðinu, hefur þjálfað flesta flokka hjá SR og verið aðstoðarþjálfari í karla og kvennalandsliðinum ásamt U20. Hann hefur líka látið til sín taka í félagsstarfi íshokkíhreyfingarinnar – hefur bæði verið í stjórn og formaður íshokkídeildar SR, aðalfélags Skautafélags Reykjavíkur og Íshokkísambands Íslands. Auk alls þess hefur Helgi verið viðloðandi dómgæslu síðustu 20 árin sem línudómari, aðaldómari og eftirlitsdómari.

Ævar Þór er einnig SR-ingur í húð og hár, stóð 10 tímabil á milli stanganna í karlaliði SR, m.a. þegar við urðum Íslandsmeistarar 2009, ásamt því að spila með unglinga- og karlalandsliði Íslands. Ævar hefur verið að gera frábæra hluti sem markmannsþjálfari allra flokka hjá SR vetur, verið að dæma í Hertz-deildinni og staðið sem herforingi á bekknum í síðustu leikjum SR.

Við bjóðum þá velkomna til starfa og óskum þeim alls hins besta í þeirri baráttu sem framundan er.

12 nýir leikmenn til liðs við meistaraflokka SR
Við bjóðum hjartanlega velkomna nýja (og gamla) SR-inga í félagið!

Í meistaraflokki kvenna, Reykjavík (sameinaðs liðs SR og Bjarnarins) er nýr þjálfari frá Finnlandi, Jouni Sinikorpi. Nýir leikmenn hafa líka gengið til liðs við SR en það eru:

Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir

Sigrún Agatha Árnadóttir

Í meistaraflokki karla tekur Daniel Kolar við þjálfun liðsins. Nýir leikmenn eru:

Alexey Yakovlev

Andri Freyr Sverrisson

Aron Knútsson

Egill Þormóðsson

Jón Andri Óskarsson

Konstantin Sharapov

Markús Maack

Nicolas Jouanne

Robbie Sigurdsson

Styrmir Steinn Maack.

Við erum ótrúlega spennt fyrir komandi tímabili með þessu öfluga fólki innanborðs.

Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur
Boðað er hér með til Aðalfundar íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur.  Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til stjórnarstarfa vinsamlegast gefið ykkur fram eða hafið samband við núverandi stjórnarfólk.

Hægt er að skoða lög félagsins hér á vefnum.

Aðalfundur íshokkídeildarinnar verður haldinn í félagsaðstöðu Skautafélagsins í Skautahöllinni í Laugardal kl.20:00, mánudaginn 28. maí 2018.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í aðalfundarstörfum.

Stjórn íshokkídeildar

Velkominn heim Daniel Kolar
Varnarjaxlinn góðkunni frá Tékklandi, Daniel Kolar, hefur verið ráðinn þjálfari meistarflokks karla hjá Skautafélagi Reykjavíkur.

Daniel kom til Íslands árið 2007 og spilaði þá með SR. Árið 2012 söðlaði hann um yfir í Björninn og svo yfir í Esju árið 2015. Daniel hefur þrisvar sinnum hampað Íslandsmeistartitlinum, tvisvar með SR og einu sinni með Esju.

Hann var framkvæmdastjóri hjá SR ásamt því að þjálfa meistarflokk kvenna og yngri flokka. Hjá Birnunum þjálfaði hann einnig yngri flokkana ásamt því að hafa verið aðstoðarþjálfari U18 2011-2012.

Félagar hans úr íshokkíinu segja hann stóran og erfiðan andstæðing inn á svellinu, skotfastan og hittinn – en þess utan einstaklega ljúfan og hjálpsaman vin. Daniel er giftur Diljá Hreiðasdóttur og saman eiga þau soninn Jakob Mána.

Það eru spennandi tímar framundan hjá SR!

Ársmiðar á íshokkíleiki komnir í sölu
Ársmiðar á íshokkíleiki Skautafélagsins eru komnir í sölu í vefverslun félagsins.  Miðarnir koma í tveimur „stærðum“.  Annarsvegar er um að ræða Ársmiða sem er á kr.10.000 og síðan er Lúxusársmiði sem er á kr.15.000 og gildir sá miði á alla heimaleiki SR í Laugardal og alla útileiki SR í Egilshöll.  Þetta er frábær leið til að styrja íshokkídeildina og næla sér í miða á nær alla leiki SR í Reykjavík.

Leikur í kvöld og um helgina!
Í kvöld mun 2.flokkur SR skunda upp í Egilshöll og spila fyrsta leik tímabilsins í öðrum flokki.  2.flokkur er búinn að vera í stífum æfingum hjá Kára Guðlaugssyni og lýtur hópurinn bara nokkuð vel út.  Leikurinn hefst kl.19:45, stundvísalega.  Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta í Egilshöll og hvetja strákana áfram.

Um næstu helgi verður töluverður handagangur í öskunni þar sem það verða alls 3 leikir hjá SR. Föstudaginn mætir SR Esju í Laugardalnum kl.19:45, RVK-stúlkur mæta SA Ynjum í Egilshöll kl.16:30 og kl.18:00 á laugardeginum 9. sept mun SR taka á móti SA Jötnum í Skautahöllinni í Laugardal kl.18:00.

Allir félagsmenn eru hvattir til að skella sér á þessa leiki og hvetja okkar fólk áfram!

Tímabilið er hafið – allir á ísinn!
Kæru SRingar og aðrir.

Nú er tímabilið að hefjast og fyrstu æfingar, samkvæmt auglýstri æfingatöflu, byrjuðu í þessari viku.

Geymsla fyrir búnað

Í ár munum við taka upp nýtt fyrirkomulag á geymsluplássi fyrir búnað iðkenda. Útbúin verður lokuð geymsla þar sem í boði verður að leigja pláss á kr. 8000 fyrir árið. Kassi fyrir búnaðinn er innifalinn í verðinu.  Við skráningu iðkanda í félagaskráningarkerfi verður hægt að haka við leigu á kassa og greiða kassagjaldið samhliða æfingagjöldum. Iðkandi kemur svo með kvittun (útprentaða eða í síma) úr kerfinu og fær afhentan merktan kassa á næstu æfingu.  Einnig er hægt að greiða fyrir kassann í vefverslun SR og framvísa kvittun þaðan.

Leigubúnaður

SR bíður upp á leigu á hlífðarbúnaði fyrir iðkendur sem eru að stíga sín fyrstu skref á svellinu. Búnaðarleigan hjá SR er hugsuð til þess að ekki þurfi að fjárfesta í öllum búnaði strax.  Leiga á búnaðarpakkanum er kr. 4000 fyrir önnina (kr. 8000 árið) og munu þjálfarar og fulltrúar foreldrafélags aðstoða við að finna réttan búnað á fyrstu æfingum vetrarins.

Skautaskólinn byrjar formlega 3. september. Foreldrafélagið verður með fulltrúa á staðnum bæði til að aðstoða þjálfara við að gera alla klára á ísinn en einnig til að spjalla við nýja foreldra og kynna fyrir þeim félagið og starfið okkar.

Svo minnum við á að það kostar ekkert að prófa íshokkí í Skautaskólanum svo endilega bjóðið vinum og vandamönnum að koma og prófa þessa frábæru íþrótt.

Þjálfarar og foreldrafélagið

Síðasti heimaleikur meistaraflokks karla á tímabilinu!
Næstkomandi föstudagskvöld mun Meistaraflokkur Skautafélags Reykjavíkur spila sinn síðasta heimaleik á tímabilinu niður í Skautahöllinni í Laugardal. Mótherjar eru reynsluboltarnir í SA.  Fyrir þennan leik situr SR á botni deildarinnar með 10 stig eftir 22 leiki.  Stór hluti liðsins hét utan í morgun með U18 landsliði Íslands en leið þess liggur til Serbíu á mót í 2. deild B á HM og etja þar kappi við Ástralíu, Holland, Belgíu, Spán og auðvitað heimamenn í Serbíu.

En hvað sem því líður ætla SR-ingar að mæta grjótharðir til leiks og ætla ekki að gefa neitt eftir.  Flestir leikmenn eru heilir og Bjarki Reyr er kominn til baka úr útlegð í Asíu og það verður spennandi að sjá hvað trix hann hefur lært þar ytra.

Mætum öll í Skautahöllina í Laugardal og styðjum við bakið á strákunum okkar!  Leikurinn hefst kl.19:45!

Uppfærð æfingatafla hjá íshokkídeild – UPPFÆRT
Nú á dögunum settist stjórn og þjálfarar íshokkídeildar niður og endurskoðuðu æfingatöflu deildarinnar fyrir veturinn.  Það var niðurstaða þess fundar að æskilegra væri að lengja hverja æfingu hjá unglingaflokkum og meistaraflokkum heldur en að fjölga þeim skiptum sem þessir flokkar eru að mæta til æfinga niður í Skautahöllina í Laugardal. Einnig kemur þetta af því að mikill fjöldi æfinga fellur niður vegna keppni í öllum flokkum og var það mat fundarins að með þessu móti næðist betri nýting á þeim ístíma sem deildin hefur til umráða.  Hægt er að nálgast æfingatöfluna í PDF-formi hér.  Þessi stundatafla er birt með þeim fyrirvara að hún gæti tekið minniháttarbreytingum á næstu dögum.  Nánari upplýsingar veitir stjórn íshokkídeilar og þjálfarar flokkanna á æfingatíma.  Þessi æfingatafla tekur gildi frá og með sunnudeginum 29. janúar

Áramótaviðtal við Richard
Ef fólk rýndi einungis í tölurnar þá myndi það sjálfsagt komast að þeirri niðurstöðu að Skautafélag Reykjavíkur gangi illa á öllum sviðum íshokkís um þessar mundir. En fyrir þau sem fara á leiki liðsins, hafa gaumgæft breytingar á leikmannahóp, aldur liðsmanna o.s.frv. þá skýrir það að hluta til gengi liðsis. En það er engin betri en þjálfarinn í að kasta ljósi á hvað sé á seyði í leik og „menningu“ SR, meistaraflokks karla. SRhokkí lagðist yfir liðsmálin með Richard Tahtinen á dögum, og komst m.a. að því – eins og svo oft áður – að framtíðin er björt.

Um markmið liðsins á þessu leiktímabili

Fyrir það fyrsta þá er eitt aðalmarkmiða okkar að ná að tileinka okkur hugarfar sem fókusr sérstaklega á það sem við erum að gera akkúrat núna, þ.e.a.s. að á leikdögum þá hugsum við bara um hann og þá litlu hluti sem við verðum að gera rétt til að ná sem bestum árangri það skiptið. Og gera þá hluti rétt. Við viljum sömuleiðis beina athygglinni að því kerfi sem við erum að þróa og hegðun okkar og viðbrögðum við ólíkum hlutum sem koma fyrir í leik.  Meðal þess sem við erum að fókusa á núna er að minnka atvik þar sem við missum pökkin til andstæðingsins á hættulegum stöðum. Sömuleiðis erum við að byggja á hraða, viljum vera fyrsti í pökkinn þegar hann er laus. Við viljum vinna návígi og takmarka þann tíma sem við spilum einum færri vegna villuvandræða.

SR hefur vermt botn deildarinnar lengi. Hvernig er mórallinn hjá liðinu?

Það gefur auga leið að við viljum alls ekki verma botninn og sú staða getur haft mikil áhrif á öll lið í þannig stöðu. Ein eins og ég sagði áðan, þá setjum við miðið á verkefni liðsins frá degi til dags og njóta þess sem við gerum vel og gæta þess að hafa gaman. Þetta þýðir þó ekki að við séum ánægðir með stöðuna. Þetta þýðir að mórallinn í liðinu er ekki háður því hvort við erum að vinna eða tapa. Mórallinn er góður þessa dagana.

Um síbreytilegar línur og samanburð við önnur lið

Það er mín upplifun að þetta lið hafi mátt yfirstíga ýmislegt á undanförnum ár, að töluverðu leiti vegna þess að fyrrverandi leikmenn hafa annað hvort hætt eða fært sig um set til annara liða, hér og að heiman. Engir leikmenn í deildinni hafa mætt sömu áskorunum og ungu strákarnir í SR. Að mínu viti eru þessir strákar þeir seigustu og  intrinsically motivated individuals in the league.  Að því sögðu er mikil vinna framundan og um það snýst þetta tímabil að miklu leiti; að læra meira um sálfræði- og leikskipulagslegu hlið leiksins. Útlitið er gott því Skautafélag Reykjavíkur er samstíga í að þróa þennan hóp til framtíðar og tengja við starfið í yngri flokkunum með samfellu í huga. Úr yngri flokkunum koma íshokkímenntaðari einstaklingar en áður.

Tímabilið til þessa og að vera aftur SR-ingur

Það er frábært að vera kominn aftur. Tímabilið hefur verið áhugavert og erfitt til þessa. Augljóslega felst áskorun í því að missa svona mikið af leikmönnum skömmu áður en leiktíðin hófst. Við byrjuðum veturinn með góðum sigri. Í kjölfarið komu ósigrar, misstórir þó. Hvað sem því líður þá var „kommbakkið,“ í leknum gegn Birninum 25. október, eitthvað sem sýnir getuna sem býr í liðinu. Þótt tiltölulega skammt sé liðið á deildina höfum við þegar upplifað alla mögulegar útkomur í leikjunum. Nú þurfum við bara að finna fastheldnari milliveg frá leik til leikjar og mjaka okkur í átt að fleiri sigrum. Ég trúi að þegar líður á tímabilið mun fólk sjá betur skiðulagt, duglegra og spenntara ungr SR-lið.

Nú klárast senn tveggja vikna leikjapása. Er ekki erfitt að halda sér og liðinu á tánum í þessum hokkíþurrki?

Það er alveg snúið, en með tvo sigra í röð er biðin bærilegri. Frá mínum bæjardyrum séð er þessa pása ágætlega tímasett þar sem flestir leikmanna SR er í einhverskonar skólaprófum um þessar mundir eða að undirbúa þau.

Kvisast hefur út að Bjarki Reyr, fyrirliðinn okkar, muni ekki klára tímabilið og bráðlega hverfi hann af landi brott í hreimsreisu. Þetta er enn ein blóðtakan.

Að missa Bjarka er þungt. Hans verður sárt saknað. Hann er einn af okkar fáu landsliðsmönnum um þessar mundir. Hann er áræðanlegur leikmaður sem getur spilað í báðar átti, traustur í vörn og sókn. Og hann er fyrirliðinn okkar. Við verðum að reyna að vera sveigjanlegir og nota hugmyndaflugið til þess að fylla í skarðið sem hann mun skilja eftir sig.

Takk fyrir spjallið, þjálfi. Eitthvað að lokum?

Bara, við erum afskaplega þakklátir fyrir stuðningin sem við fáum frá fólki á pöllunum þrátt fyrir að liðið sé að upplifa erfiða tíma. En í þessu liði er björt framtíð.