Viðtal – Skautafélag Reykjavíkur

Áramótaviðtal við Richard
Ef fólk rýndi einungis í tölurnar þá myndi það sjálfsagt komast að þeirri niðurstöðu að Skautafélag Reykjavíkur gangi illa á öllum sviðum íshokkís um þessar mundir. En fyrir þau sem fara á leiki liðsins, hafa gaumgæft breytingar á leikmannahóp, aldur liðsmanna o.s.frv. þá skýrir það að hluta til gengi liðsis. En það er engin betri en þjálfarinn í að kasta ljósi á hvað sé á seyði í leik og “menningu” SR, meistaraflokks karla. SRhokkí lagðist yfir liðsmálin með Richard Tahtinen á dögum, og komst m.a. að því – eins og svo oft áður – að framtíðin er björt.

Um markmið liðsins á þessu leiktímabili

Fyrir það fyrsta þá er eitt aðalmarkmiða okkar að ná að tileinka okkur hugarfar sem fókusr sérstaklega á það sem við erum að gera akkúrat núna, þ.e.a.s. að á leikdögum þá hugsum við bara um hann og þá litlu hluti sem við verðum að gera rétt til að ná sem bestum árangri það skiptið. Og gera þá hluti rétt. Við viljum sömuleiðis beina athygglinni að því kerfi sem við erum að þróa og hegðun okkar og viðbrögðum við ólíkum hlutum sem koma fyrir í leik.  Meðal þess sem við erum að fókusa á núna er að minnka atvik þar sem við missum pökkin til andstæðingsins á hættulegum stöðum. Sömuleiðis erum við að byggja á hraða, viljum vera fyrsti í pökkinn þegar hann er laus. Við viljum vinna návígi og takmarka þann tíma sem við spilum einum færri vegna villuvandræða.

SR hefur vermt botn deildarinnar lengi. Hvernig er mórallinn hjá liðinu?

Það gefur auga leið að við viljum alls ekki verma botninn og sú staða getur haft mikil áhrif á öll lið í þannig stöðu. Ein eins og ég sagði áðan, þá setjum við miðið á verkefni liðsins frá degi til dags og njóta þess sem við gerum vel og gæta þess að hafa gaman. Þetta þýðir þó ekki að við séum ánægðir með stöðuna. Þetta þýðir að mórallinn í liðinu er ekki háður því hvort við erum að vinna eða tapa. Mórallinn er góður þessa dagana.

Um síbreytilegar línur og samanburð við önnur lið

Það er mín upplifun að þetta lið hafi mátt yfirstíga ýmislegt á undanförnum ár, að töluverðu leiti vegna þess að fyrrverandi leikmenn hafa annað hvort hætt eða fært sig um set til annara liða, hér og að heiman. Engir leikmenn í deildinni hafa mætt sömu áskorunum og ungu strákarnir í SR. Að mínu viti eru þessir strákar þeir seigustu og  intrinsically motivated individuals in the league.  Að því sögðu er mikil vinna framundan og um það snýst þetta tímabil að miklu leiti; að læra meira um sálfræði- og leikskipulagslegu hlið leiksins. Útlitið er gott því Skautafélag Reykjavíkur er samstíga í að þróa þennan hóp til framtíðar og tengja við starfið í yngri flokkunum með samfellu í huga. Úr yngri flokkunum koma íshokkímenntaðari einstaklingar en áður.

Tímabilið til þessa og að vera aftur SR-ingur

Það er frábært að vera kominn aftur. Tímabilið hefur verið áhugavert og erfitt til þessa. Augljóslega felst áskorun í því að missa svona mikið af leikmönnum skömmu áður en leiktíðin hófst. Við byrjuðum veturinn með góðum sigri. Í kjölfarið komu ósigrar, misstórir þó. Hvað sem því líður þá var “kommbakkið,” í leknum gegn Birninum 25. október, eitthvað sem sýnir getuna sem býr í liðinu. Þótt tiltölulega skammt sé liðið á deildina höfum við þegar upplifað alla mögulegar útkomur í leikjunum. Nú þurfum við bara að finna fastheldnari milliveg frá leik til leikjar og mjaka okkur í átt að fleiri sigrum. Ég trúi að þegar líður á tímabilið mun fólk sjá betur skiðulagt, duglegra og spenntara ungr SR-lið.

Nú klárast senn tveggja vikna leikjapása. Er ekki erfitt að halda sér og liðinu á tánum í þessum hokkíþurrki?

Það er alveg snúið, en með tvo sigra í röð er biðin bærilegri. Frá mínum bæjardyrum séð er þessa pása ágætlega tímasett þar sem flestir leikmanna SR er í einhverskonar skólaprófum um þessar mundir eða að undirbúa þau.

Kvisast hefur út að Bjarki Reyr, fyrirliðinn okkar, muni ekki klára tímabilið og bráðlega hverfi hann af landi brott í hreimsreisu. Þetta er enn ein blóðtakan.

Að missa Bjarka er þungt. Hans verður sárt saknað. Hann er einn af okkar fáu landsliðsmönnum um þessar mundir. Hann er áræðanlegur leikmaður sem getur spilað í báðar átti, traustur í vörn og sókn. Og hann er fyrirliðinn okkar. Við verðum að reyna að vera sveigjanlegir og nota hugmyndaflugið til þess að fylla í skarðið sem hann mun skilja eftir sig.

Takk fyrir spjallið, þjálfi. Eitthvað að lokum?

Bara, við erum afskaplega þakklátir fyrir stuðningin sem við fáum frá fólki á pöllunum þrátt fyrir að liðið sé að upplifa erfiða tíma. En í þessu liði er björt framtíð.

Baráttusigur gegn Birninum á föstudag
Á síðasta föstudagskvöld tók SR á móti Birninum í Skautahöllinni.  Björninn er í öðru sæti deildarinnar á eftir Esju með 16 stig og fyrirfram var búist við að SR-ingar myndu eiga erfiðan leik fyrir höndum.  En raunin var allt önnur.  SR-ingar komu skipulagðir til leiks og sýndu mikla vinnusemi og aga í sínum varnarleik gegn frísku liði Bjarnarins sem sótti nær án afláts allar þrjár loturnar. Til marks um sóknarþunga Bjarnarmanna þá fékk Ævar Þór Björnsson á sig 54 skot í leiknum.

Robbie Sigurðsson var drjúgur fyrir SR-inga einsog oft áður og skoraði gríðarlega flott mark um miðja aðra lotu.  Hann var einnig að verki í seinna marki SR þegar hann skaut frá miðju í tómt mark Bjarnarmanna undir lok þriðju lotu.  Hann hefur verið að raða inn mörkum og stoðsendingum í undanförnum leikjum. Þegar SR-hokkí spurði  hvort hann væri í beinu sambandi við hokkíguðina hunsaði hann spurninguna. Ekki mikið fyrir að vera í kastljósinu sem beinist sérstaklega að honum. Varðandi lykilinn að velgengni síðustu tveggja leikja segir hann það einfaldlega vera það að spila eins og lagt er upp með. Maður fárra orða. En hann harmar að næsti leikur sé tvær vikur inn í framtíðina því liðið sé að hitna og er á góðu flugi.

Fyrirliðinn Bjarki Reyr þakkar m.a. markverði sínum, Ævari Björnssyni, sigurinn. “Eigum ævari mikið að þakka. Við mættum bara fullir af orku og spiluðum okkar leik”.

Viktor Örn í vörninni var spurður um álagið með svona fá varnarmenn sér við hlið. “Við gerðum það líka í leiknum á móti SA, en það er mjög erfitt”. Honum fannst allir í liðinu standa sig vel og segir engan hafi gefist upp.

Richard Tahtinen gefur strákunum allan heiðurinn. Hann segir þá hafa aldrei brugðið sér frá leikplaninu og hafa fengið á sig færri brottvísanir en við eigum að venjast. Hann segir þá duglega og baráttuglaða. Varðandi framhaldið segir hann liðið ætla að spila í þessum dúr og halda áfram að leggja áherslu á þau atriði sem lagt hefur verið upp með í allan vetur.

Hér að neðan má sjá viðtal við Ævar Þór Björnsson, markmann meistaraflokks.

LEIKIR HELGARINNAR OG UM SLAKT GENGI UNDANFARIÐ
Það hefur ekki farið framhjá neinum að meistaraflokkur karla hefur átt á brattan að sækja í allan vetur. Eitthvað sem gert var ráð fyrir og margar útskýringar hafa verið gefnar, en eftir tvo leiki þar sem liðið stóð vel í sterkum andstæðingum og hefði jafnvel geta landað sigri eða tveimur, þá er því ekki að neita að stuðningsfólk varð fyrir sárum vonbrigðum með síðasta leik gegn Birninum. Björninn og SR er þekkt fyrir jafnar rimmur hvar allt getur gerst en því var ekki að fara í síðasta leik liðanna. Þvert á móti.

SR mætir Esju næstkomandi Laugardag, 19. nóvember, kl. 18:45. Þar er á ferðinni lið sem flestir segja líklegastir í dolluna í ár. Daginn eftir fær SR Skautafélag Akureyrar aftur í heimsókn, en þeir unnu Esju nokkuð auðveldlega fyrr í vikunni. Þess vegna leikur SRhokkí forvitni á að vita hvað sé að gerast hjá okkar mönnum hvernig þeir ætla inn í leiki helgarinnar.

Þessi leikur var mikil vonbrigði fyrir stuðningsfólk

Richard Tahtinen var fljótur að benda á þá staðreynd að Björninn er stærra og þyngra lið, sem útskýrir að hluta til af hverju SR tapar svona mörgum 1-á-1 baráttum. “Þrátt fyrir það þá þurfum við að vera betri í að nýta hraðann okkar í sókninni og þegar við pressum andstæðinginn á sínu svæði.” Hann segir einnig að vörnin þurfi að verða klókari og skipulagðari. “Hún er að gefa andstæðingnum allt of mikið pláss og tíma til athafna.” Þjálfarinn segir þetta eina forsenda þess að liðið vinni leiki.

Fyrir leikinn ætlaði SR að sýna meiri yfirvegun til að forðast skammakrókinn, gæta þess að missa ekki pökkinn og spila betur úr eigin svæði og yfir í sóknina. Ekkert af þessu gekk eftir

Við höfum verið að vinna í öllu ofangreindu í vetur. Þetta er ungt lið og fæstir leikmanna okkar eru með mikla reynslu. Þegar þú ert aðlæra eitthvað nýtt, þá er eftirfarandi yfirleitt trendið; þú spilar eftir bókinni einn leik en í þeim næsta ferðu út fyrir handritið. Vinnan mín felst í því að halda áfram að hamra á sama naglanum þangað til hann er varanlega fastur. Og þá er ég að tala um að halda leiknum einföldum og að við einbeitum okkur að markmiðunum sem við höfum sett okkur.

Robbie Sigurðsson segir að liðið hafi ekki skautað af nægilega mikilli áfergju og verið of seint. Hann vill að þeir leggi harðar að sér til að vinna í 1-á-1aðstæðum og haldi eða nái pekkinum þannig. Varðandi stærðarmun liðann, segir hann að auðvitað skipti það máli,“En hún segir ekki alla söguna. Þú verður að lesa vel í leikinn og spilið og bregðast rétt við.”

Varðandi Esju segir Robbie SR þurfa vera andlega klára og yfirvegaða. En þegar kemur að SA þá þarf liðið hans að vera tilbúið í að leggja enn harðar að sér en áður.

Robbie segist að lokum vera sammála þjálfara sínum um að þau markmið sem SR setti sér gegn Birninum hafi ekki gengið upp. Hann segir ennfremur að liðið verði búið að taka á þessu fyrir helgina.

SR-LEIKIR HELGARINNAR Í HERTZ-DEILDINNI Í ÍSHOKKÍ

Laugardaginn 19. nóvember ESJA – SR kl 18:45 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

Laugardaginn 19. nóvember YNJUR – SR kl 16:30 í Skautahöllinni á Aukureyri.

Sunnudaginn 20. nóvember SR – SA kl 19:00 í Skautahöllinni Laugardal. MFLKK – 1000kr. inn – ÓKEYPIS fyrir 16 ára og yngri.

SR-MFLKVK í öðru sæti á Reykjavík Ice-Cup!
Andinn heldur áfram að gefa í samheldnu stemmningsliði Skautafélags Reykjavíkur, meistaraflokks kvenna. Síðust helgi lauk hinu árlega Reykjavík Ice-Cup þar sem stelpurnar okkar gerðu sig gildandi.

Hin Kanadíska Deirdre Norman, stofnandi The Women Of Winter, leggur ríka áherslu á að halda við hokkítengingu Íslands og Kanada, en hún var í forgöngu fyrir því að fyrsta Bandaríska liðið tæki þátt í mótinu í ár. Mótinu var að þessu sinni skipt í tvo styrkleikaflokka. Einn fyrir áhugamannalið, en hinn fyrir hokkífólk sem hefur spilað í erfiðari og dýpri deildum. Íslensku liðin tilheyra fyrri flokknum.

Valkyrjur SA.

SR-ingar unnu fyrsta leikinn, sem var gegn Chinook Ice frá Kanada. Lokatölur 1 – 0. Því næst lutu þær í lægra haldi, 1 – 6,  fyrir Seattle Seacups. Valkyrjur unnu þær 3 – 1 og enduðu svo í úrslitarimmu við Seattle liðið. Þar mættu okkar konur grimmar til leiks enda mun mjórra á munum þegar dómari flautaði til leiksloka. Seacups skoruðu eina mark þess leiks. Vel af sér vikið hjá SR!

Jóhanna Bárðardóttir var að vonum ánægð með mótið. Hún benti á að mótið væri meira til gamans og til þess að styrkja tengslin og fagna saman ástríðu kvenna á íshokkí. “Þetta er alltaf hrikalega skemmtilegt. Allir eru þarna bara til að skemmta sér og spila hokkí. Þessar konur sem koma að utan eru yfirleitt frá þrítugu og upp úr. Til dæmis var einn markmaður í kanadíska liðinu 64 ára. Hversu svalt!”

Mörkin ekki markvörðunum að kenna
Bjarki Reyr Jóhannesson er SR-ingur í húð og hár. Hann hefur alla tíð verið hjá félaginu, sýnt því mikla hollustu og þannig verið góð fyrirmynd. Leiðin hefur legið í leiðtogahlutverk innan liðsins. Nú er svo komið að hann er fyrirliði meistaraflokks karla, þótt ungur sé, aðeins 20 ára. Bjarki hefur tekið þátt í mörgum mótum með U18 og U20 ára landsliðunum og eitt mót með A-landsliðinu. En aldrei spilað fyrir annað félag.   Leiktíðin hefur verið upp og niður hjá SR sem af er tímabili, en kannski ekki við öðru að búast með svona ungt lið og menn enn að stilla saman strengi.

SR-hokkí átti samtal við fyrirliðann og hann sagði okkur frá ýmsu sem varðar liðið akkúrat núna, framhaldið og fleira.

Það eru margir bjartir punktar í spilum SR þessa dagana. Byrjum á nýjum þjálfara. Richard Tahtinen er aðalþjálfari liðsins og SR-ingum að góðu kunnur. Nú er hann kominn aftur.

Þú, verandi SR í gegn, getur sagt okkur frá því hvað hann er að koma með inn í liðið, samanborið við fyrri þjálfara. Hvernig lýst ykkur á kallinn?

“Flestir í liðinu þekktu Richard áður enn hann hóf störf í sumar, hann þjálfaði marga okkar þegar við vorum yngri og þekkir okkur sem leikmenn. Ég held að flestir hafi verið sáttir með að heyra að hann myndi þjálfa okkur í vetur í stað Bandaríkjamannsins sem ætlaði að koma. Bæði vegna þess að það þekkti engin til hans en allir þekkja Richard og kunna að meta hann sem þjálfara.”

Fljótt á litið virðist SR vera með yngsta liðið í deildinni í ár og þjálfarinn notar mikið yngstu strákana. Hver er þín tilfinning fyrir þessum nýja kjarna? Hvað einkennir þá og er öðruvísi í samanburði við elstu kempur liðsins?

“Ungt lið býður upp á bjarta framtíð. Ungir og efnilegir strákar eru að fá að spila, safna reynslu og bæta sig. Reynsluboltarnir spila auðvitað stórt hlutverk í leik liðsins og við að byggja upp yngri leikmenn. Ég er mjög jákvæður fyrir þessu og það er góður andi í liðinu.”

Eins og áður segir þá eru ljósir punktar, t.d. ungur mölli sem verður brátt reiðubúinn í að bítast um krúnuna við Ævar markmann. En eitthvað segir mér að þú sért ekki ánægður með stigafjöldan sem af er? Hvað þarf SR að gera til að stoppa lekann og klára leiki?

“Arnar, oft kallaður kötturinn, hefur margsannað hvað hann er hraður og sterkur markmaður og það verður vissulega hart barist um markvarðarstöðuna á þessu og komandi tímabilum. Við erum búnir að fá mikið af mörkum á okkur í síðustu leikjum en ég held að það sé lítið hægt að kenna markmönnunum um það heldur meira varnarleik liðsins í heild sinni. Það er auðvitað eitthvað sem við erum að tala um, æfa og bæta.”

Fyrir lesendur sem þekkja ekki til, getur þú tilgreint erlenda leikmenn sem eru hjá okkur þátt þeirra í leik liðsins?

“Milos Racanský er frá Tékklandi og þetta er fjórða tímabilið hans hjá SR. Hann er virkilega hraður og skemmtilegur leikmaður.  Robbie Sigurðsson (aðstoðarfyrirliði) er hálfur Íslendingur sem ólst upp í Ameríku. Hann er núna að spila þriðja tímabilið sitt í röð fyrir SR og er tekknískur og góður “playmaker”.  Jan Kilibár er frá Tékklandi. Hann er mikilvæg viðbót við liðið sem stór og sterkur varnarmaður.  Oldrich Herman (“Bakarinn”) er einnig frá Tékklandi. Hann kom til landsins til að vinna sem bakari og ákvað koma og spila fyrir SR. Hann er reynslumikill og góður leikmaður.  Josh Popsie er Ameríkani sem kom til landsins sem starfsmaður IcelandAir. Hann er búinn að vera æfa með okkur sem markmaður og vera á bekknum í leikjum, Rikka til aðstoðar.”

Hvaða lið er SR erfiðast og hvaða leikmann finnst þér skemmtilegast að eiga við?

“Það er erfitt að svara þessari spurningu. Mikill munur er á okkur eins og hinum liðunum á milli leikja og lítið er búið af tímabilinu. Stærsta tapið okkar var gegn Birninum en vonandi snýst það við þegar líður á tímabilið. Ætli mér persónulega finnist ekki skemmtilegast að kljást við gömlu SR-ingana í Esjunni.”

Tímabilið 2013 til 2014 var eftirminnilegt.

“Það tímabil byrjaði nú ekkert alltof vel frekar en þetta en við héldum áfram og bættum okkur. Þa vorum við líka með eldra lið og sterka útlendinga í vörninni. Það small bara allt saman seinni part tímabils.”

Úrslitarimman núna verður…?

“Skautafélag Reykjavíkur gegn UMFK Esja.”

MILOS FÓR ÚT AF VEGNA MEIÐSLA 30. SEPT. HVERT ER FRAMHALDIÐ?
Miloslav Račanský, eða Milos eins og félagar hans og stuðningsfólk SR kallar hann, er einn af litríkustu, ástælustu og atkvæðamestu leikmönnum liðsins. Milos er tékkneskur og hefur spilað með SR í þrjú tímabil. Síðastliðinn föstudag, í leik SR gegn Birninum, þurfti Milos að skauta af ísnum vegna meiðsla, og stirr fór um aðdáendur SR á pöllunum sem sáu þar á eftir einum af sínum mikilvægustu leikmönnum. Spurningar flugu á milli áhorfenda. Hvað kom fyrir? Pökkur í andlit? Kylfa í andlit? Myndi þetta óhapp taka Milos úr umferð fyrir næsta leik eða jafnvel lengur? Þetta er það sem SRhokkí spurði sig sömuleiðis. Þess vegna settum við okkur í samband við Milos.

Hvað gerðist?

– Ingþór, leikmaður Bjarnarins, reyndi að hreinsa pökkinn – með löngu skoti – úr hlutlausa svæði Bjarnarins og það endaði í andlitinu á mér.

Hvernig var tilfinningin? Og, hélstu að þú ættir afturkvæmt í leikinn?

– Tilfinningin var ekki góð og ég rotaðist í smástund. Ég man ekki nægilega vel augnablikinu eftir höggið. Ég ætlaði aftur á ísinn en gaurarnir í sjúkraliðarnir harðbönnuðu mér það.

Hvenær heldur þú að þú spilir næst?

– Vonandi í næsta leik. Ég veit það sama dag og leikurinn fer fram.

Hvað finnst þér um þá leiki sem þið hafið spilað sem af er tímabili? Hvað þarf SR að gera betur?

– Við verðum að nýta tækifrin okkar betur, sérstaklega powerplay og hirða lausa pekki í kring um markið. Við þurfum einnig að styrkja og skipuleggja vörnina.

Næsti leikur SR meistraflokks karla verður í kvöld, laugardagskvöld. Þar mæta þeir Esju.