Listskautadeild Skautafélags Reykjavíkur tilkynnir hér með:
Keppnisflokkar
Keppt er eftir reglum ÍSS um keppni í félagalínu og reglum um keppni í Special Olympics.
Keppnisflokkar félaga
6 ára og yngri, unisex 14 ára og yngri, drengir og stúlkur
8 ára og yngri, unisex 15 ára og eldri, drengir og stúlkur
10 ára og yngri, unisex 25 ára og eldri, menn og konur
12 ára og yngri, drengir og stúlkur
Keppnisflokkar Special Olympics og Adaptive Skating
Level I Parakeppni
Level II SO
Level III Unified
Level IV
Level V
Dómarakerfi og úrslit
Keppniskerfi félaganna, notast við Stjörnukerfi.
Keppniskerfi Special Olympics og Adaptive Skating, notast við Stjörnukerfi SO/AS.
Úrslit verða birt á www.skautafelag.is/list að móti loknu.
Keppnisröð
Dregið verður í keppnisröð 16. apríl 2024.
Keppnisröð verður birt á www.skautafelag.is/list
Verðlaun
Í keppnisflokkum 6, 8 og 10 ára og yngri eru ekki gefin upp verðlaunasæti. Allir keppendur fá þátttökuviðurkenningu. Í öðrum keppnisflokkum eru veittir verðlaunapeningar fyrir efstu þrjú (3) sætin. Þátttökuviðurkenningar eru veittar til annarra keppenda.
Dagskrá – birt með fyrirvara
Laugardagurinn 20. apríl kl. 8.00-12:45.
Sunnudagurinn 21. apríl kl. 8.00-12:45.
Endanleg dagskrá verður birt á www.skautafelag.is/list 16. apríl 2024.
Við áskiljum okkur rétt til þess að bæta við föstudeginum 19. apríl ef keppendur verða of margir til að passa á 20.-21. apríl.
Skráning og keppnisgjöld
Skráning og greiðsla keppnisgjalda skulu berast eigi síðar en 13. apríl 2024 í tölvupósti til motsstjori.lsr@gmail.com á meðfylgjandi eyðublaði.
Á eyðublaðinu skal koma fram fullt nafn keppanda, kennitala, keppnisflokkur og keppnisgjald.
Keppnisgjald að fjárhæð kr. 4.500 skal greiðast fyrir hvern keppanda eigi síðar en 13. apríl 2024.
Greiða skal inn á reikning LSR, 528-26-7001, kt: 410897-2029.
Vinsamlegast setjið í skýringu: SR mótið, keppnisgjöld félags. Staðfesting greiðslu sendist á gjaldkeri.lsr@gmail.com.
Tónlist
Tónlist skal skila í rafrænu formi inn á drive möppu sem SR mun deila með félögunum. Einnig þurfa keppendur að hafa tónlist á rafrænu formi með sér til vara.
Þjálfarar og liðsstjórar
senda þarf nöfn þjálfara og liðsstjóra á motsstjori.lsr@gmail.com í síðasta lagi 13. apríl 2024. Senda þarf nöfn, símanúmer og netföng þeirra.
Forföll keppenda
Foröll skulu tilkynnast á netfangið motsstjori.lsr@gmail.com Einungis er hægt að sækja um endurgreiðslu vegna keppnisgjalda hafi forföll verið tilkynnt áður en keppandi átti að keppa. Endurgreiðsla nemur helmingi keppnisgjalda.
Skiladagsetningar
Skráning á mót og greiðsla keppnisgjalda 13. apríl 2024
Skil á tónlist 13. apríl 2024
Keppnisröð og dagskrá birt 16. apríl 2024
Mótsstjóri
Anna Gígja Kristjánsdóttir
Með skráningu á mótið gerir skautari og/eða forráðamaður sér grein fyrir því að upplýsingar um gengi skautara á mótinu eru gerðar opinberar og geymdar hjá Skautasambandi Íslands. Þá gerir skautari/forráðamaður sér grein fyrir að teknar eru ljósmyndir af skauturum á mótinu og þær birtar opinberlega á heimasíðu sambandsins, heimasíðu Skautafélags Reykjavíkur og mögulega í fjölmiðlum.
F.h. Listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur,
Mótsstjóri