Starfsmenn LSR

Þjálfarar framhaldshópa LSR

Ásdís – Íþróttastjóri listhlaupadeildar SR


Ásdís er íþróttastjóri listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur (SR). Hún er jafnframt skráð sem yfirþjálfari deildarinnar (LSR) og er tengiliður hennar við Skautasamband Íslands (ÍSS).

Ásdís býr yfir víðtækri reynslu af skautaíþróttinni, bæði sem keppandi, þjálfari og alþjóðlegur tæknidómari. Fyrir störf sín hefur Ásdís hlotið viðurkenningu frá Skautasambandi Íslands fyrir áralangt og mikilvægt framlag til íslenskrar skautaíþróttar.

Menntun og þjálfararéttindi
Ásdís er með B.Sc.-gráðu í íþróttafræði og M.Ed.-gráðu í kennslufræðum. Hún hefur einnig lokið 1., 2. og 3. stigi þjálfaramenntunar hjá ÍSS/ÍSÍ. Hún tók um árabil þátt í alþjóðlegu þróunarverkefni á vegum Alþjóðaskautasambandsins (ISU), bæði sem þjálfari og tæknidómari. Ásdís hefur starfað sem þjálfari hjá LSR á eftirfarandi tímabilum: 2001–2006, 2009–2012, 2015–2016, 2025-

Umsjón með æfingahópum: Y1, M1 og Synchrostarfi félagsins

Netfang: skautastjori@gmail.com

Um Ásdísi – Skautaferill og reynsla

Ásdís hóf íþróttaferil sinn aðeins fjögurra ára gömul þegar hún byrjaði að æfa fimleika hjá Gerplu. Ellefu ára prófaði hún skautaæfingu í fyrsta sinn og heillaðist strax af íþróttinni. Samhliða skautaæfingum stundaði hún nám við Listdansskóla Íslands.

Á keppnisferli sínum keppti Ásdís fyrir hönd íslenska landsliðsins á Norðurlandamóti í Junior Women-flokki og á heimsmeistaramóti í samhæfðum skautadansi í fullorðinsflokki (Senior).

Hún keppti einnig með sænska liðinu Team Sweden 2, meðal annars á heimsmeistaramótinu í Búdapest árið 2008. Sama ár hlaut hún viðurkenninguna Skautakona ársins frá Skautasambandi Íslands.

Ásdís var fyrsti Íslendingurinn til að starfa sem alþjóðlegur tæknidómari (International Technical Specialist) hjá Alþjóðaskautasambandinu (ISU). Hún gegndi því hlutverki í 11 ár, frá 2011 til 2022.

Á árunum 2011–2012 var hún jafnframt landsliðsþjálfari Skautasambands Íslands.

Auk þjálfunar og dómarastarfa hefur Ásdís tekið virkan þátt í uppbyggingu skautaíþróttarinnar á Íslandi. Hún sat í nefndum á vegum ÍSS um árabil og gegndi meðal annars formennsku í dómara- og tækniráði sambandsins.

Guillaume Kermen – Skautaþjálfari

Guillaume Kermen er franskur  skautaþjálfari með áratuga reynslu af þjálfun og starfi innan íþróttahreyfingarinnar. Hann hefur starfað bæði á Íslandi og erlendis og á langa sögu hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR). Guillaume hefur komið að þjálfun skautara á mismunandi getustigum, þar á meðal keppenda sem hafa tekið þátt í alþjóðlegum mótum fyrir Íslands hönd.

Menntun og starfsreynsla

Guillaume hefur yfir 25 ára reynslu af íþróttastarfi sem íþróttamaður og þjálfari. Hann keppti bæði í karlaflokki og einnig í sem paraskautari. Hann hefur einnig stundað framhaldsnám við Université Grenoble Alpes í Frakklandi, meðal annars á sviði stefnumótunar og hagfræði íþrótta og ferðaþjónustu. Giom tók einnig þátt í alþjóðlegum þróunarverkefnum ISU og starfaði sem þjálfari í Finnlandi og á Ítalíu,

Þjálfaraferill

Guillaume starfaði sem yfirþjálfari listhlaupadeildar SR á árunum 2005–2010. Í kjölfarið starfaði hann meðal annars við skautaþjálfun í Finnlandi áður en hann sneri aftur til Skautafélags Reykjavíkur árið 2016, þar sem hann tók að sér að leiða þjálfarastarfið fram til ársins 2022. Á þjálfaraferli sínum hefur Guillaume unnið með íslenskum skauturum sem hafa keppt á Norðurlandamótum, alþjóðlegum unglingamótum og öðrum mótum á vegum Alþjóðaskautasambandsins (ISU). Guillaume hefur um árabil verið hluti af íslensku skautasamfélagi og komið að þjálfun fjölda skautara hjá Skautafélagi Reykjavíkur.  Reynsla hans af þjálfun á Íslandi og erlendis hefur gert hann að hluta af þjálfunarsögu listhlaupadeildar SR og uppbyggingu keppnisskautunar innan félagsins.

Giom er með umsjón yfir Keppnislínu félagsins og hópum: E1 og M1

Netfang: giomk.lsr@gmail.com

Camilla Cappellin- Skautaþjálfari

Réttindi:

Level1 þjálfari

Um Camillu:

Camilla var junior skautari í landsliði Ítalíu og keppti víða um Evrópu á fjölmörgum alþjóðlegum mótum. Hún æfði bæði á Ítalíu, í Bandaríkjunum og í Frakklandi.

Að loknum keppnisferlinum tók hún þátt í atvinnusýningum á skautum og gekk til liðs við „Ghiaccio Spettacolo“, fremstu íssýningarfyrirtæki Ítalíu, þar sem hún kom fram bæði í einstaklings-og  hópatriðum. Camilla er einnig mjög fær dansari og sér um að setja upp og skipuleggja sýningar LSR

Camilla hefur þjálfað hjá LSR undanfarin þrjú ár og nýlega lokið prófi sem grunn tæknidómari. Auk þess er hún virkur meðlimur í fræðslunefnd ISS.

Camilla er með umsjón yfir: E2, E4,M3, M4 ásamt því að vera sýningarstjóri LSR

Netfang: camilla.cappellin@gmail.com

 

Emily Monaghan – Skautaþjálfari

Emily Monaghan er kanadísk skautakona með víðtæka reynslu af listhlaupi og samhæfðum skautadansi (Synchronized Skating). Emily er frá Calgary í Alberta-fylki í Kanada og hóf skautaferil sinn ung að árum. Hún hefur keppt á háu stigi í Kanada og verið hluti af hinu þekkta keppnisliði NEXXICE Senior í nokkur ár, sem er eitt af fremstu liðum Kanada í samhæfðum skautadansi. Með þátttöku sinni í NEXXICE öðlaðist Emily reynslu af keppnisskautun þar sem mikil áhersla er lögð á samhæfingu, nákvæmni, tæknilega færni og liðsheild. Emily hefur einnig lagt áherslu á að samræma skautaiðkun og háskólanám, með það að markmiði að halda áfram að stunda íþróttina eins lengi og mögulegt er. Þátttaka hennar í NEXXICE Senior hefur veitt henni innsýn í þær kröfur sem gerðar eru til skautara í keppnisíþróttum á háu stigi.

Emily er með umsjón: F1 og Team ÍSEY

 

Ellý Rún Guðjohnsen- Í leyfi 2026-2027

Ellý hefur lokið 1. stigi hjá ÍSÍ, einnig hefur hún setið dómaranámskeið hjá ÍSS. Ellý hefur verið lengi í SR og var keppandi í mörg ár. Ellý starfar einnig í Pollýönnu og getur leiðbeint öllum við kaup á skautum.

 

 

Hafdís Ása Stefnisdóttir – Skautaþjálfari

Hafdís Ása er stúdent af félagsvísindibraut og stefnir á Háskólanám á svipuðu sviði. Hafdís hefur þjálfað hjá félaginu í 4 ár og starfað sem liðstjóri á mótum auk þess að hafa verið farastjóri á mótum innan og utanlands. Hún hefur lokið þjálfaranámskeiðum 1. og 2. stigi hjá ÍSÍ og 1. stig hjá ÍSS. Einnig lauk hún grunnnámi í dómgæslu í félagalínukerfi ÍSS.
Hafdís er einnig iðkandi og æfir með E2. Hún skautar einnig með Synchro liði félagsins TEAM ÍSEY-Junior.

Hafdís verður í leyfi frá 1. febrúar 2027.

Hafdís er með umsjón yfir: Y1 og Y2

Helga Kristín Eiríksdóttir – Skautaþjálfari

Helga Kristín Eiríksdóttir er skautaþjálfari hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR). Hún er fyrrverandi keppnisskautakona félagsins og hefur starfað við þjálfun hjá deildinni um nokkurra ára skeið.

 Í vetur mun hún sjá um skipulag skautaskólans og forföll. Helga hefur lokið 1. stigi hjá ÍSÍ og ÍSS.
Helga er með umsjón yfir: Skautaskólanum

Herdís Heiða Guðjohnsen – Skautaþjálfari

Herdís Heiða þjálfar á sunnudögum í vetur. Herdís er fyrverandi iðkandi og var alþjóðlegur keppandi fyrir LSR og Ísland.

Herdís Heiða hefur lokið 1. stigi þjálfaramenntunar hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ).

Hún nýtir reynslu sína af keppnisskautun til að miðla þekkingu og færni til iðkenda félagsins.

 

Ísold Sigurðardóttir Morris – Skautaþjálfari

Ísold Sigurðardóttir Morris er skautaþjálfari með 17 ára reynslu af listhlaupi á skautum. Hún kemur frá Kanada þar sem hún hefur öðlast reynslu af skautaíþróttinni, bæði sem iðkandi og við þjálfun barna.

Ísold hefur mikinn áhuga á að miðla þekkingu sinni og reynslu til yngri kynslóða skautara og leggja sitt af mörkum til öflugs og jákvæðs æfingaumhverfis.

Ísold hefur stundað þjálfaramenntun hjá Skate Canada, kanadíska skautasambandinu, og hefur jafnframt lokið skyndihjálparnámskeiði.

Katla Rún Ísfeld –Skautaþjálfari

Katla Rún Ísfeld á að baki langan og fjölbreyttan feril innan skautaíþróttarinnar, bæði sem keppandi og tæknistarfsmaður á innlendum og alþjóðlegum skautamótum.

Katla Rún hefur öðlast alþjóðleg réttindi sem Data & Replay Operator hjá ISU og starfar við mót á alþjóðlegum vettvangi. Hún hefur einnig lokið námi sem tæknisérfræðingur (Technical Specialist – TS) og öðlast landsréttindi á því sviði.

Katla Rún hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur (SR) þegar hún var tíu ára gömul. Hún stundaði einstaklingsskautun um árabil áður en hún sneri sér að samhæfðum skautadansi (Synchronized Skating), þar sem hún skautaði með liðinu Norðurljósunum.

Reynsla hennar sem keppandi lagði grunninn að áframhaldandi þátttöku hennar í skautaíþróttinni, nú á sviði tæknistarfa og mótahalds. Auk alþjóðlegra tæknistarfa hefur Katla Rún setið í tækninefnd Skautasambands Íslands og tekið þátt í þróun og framkvæmd tæknistarfs innan sambandsins. Hún hefur einnig ferðast sem liðsstjóri með íslenska landsliðinu og þannig komið að skautaíþróttinni frá mörgum hliðum. Fyrir störf sín og framlag til skautaíþróttarinnar hefur Katla Rún hlotið heiðursviðurkenningu frá Skautasambandi Íslands.

Katla er með umsjón yfir: E6 og GG kortum

Kristín Jökulsdóttir – Skautaþjálfari

Kristín Jökulsdóttir á að baki langan feril í listhlaupi á skautum hjá Skautafélagi Reykjavíkur (SR). Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum skautamótum, bæði hér á landi og erlendis, og öðlast dýrmæta reynslu af keppnisskautun í keppnislínu ÍSS.

Kristín er með umsjón yfir: M4 og M5

Maria Khilobok – Skautaþjálfari

Maria kemur frá Úkraínu, hún stundar nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla ásamt því að þjálfa í öllum flokkum félagsins. Maria var keppnisskautari í Úkraínu og lauk 1. stigi þjálfara réttinda þar í landi. Hún lauk einnig grunnnámskeiði ÍSS í tæknidómgæslu haustið 2026. Hún skautar einnig með Synchro liði félagsins TEAM ÍSEY-Junior.

Maria sinnir þjálfun í mismunandi æfingahópum listhlaupadeildar SR og miðlar reynslu sinni af keppnisskautun til iðkenda félagsins.

Með bakgrunn sinn úr úkraínskri skautaíþrótt kemur hún með fjölbreytta reynslu og þekkingu inn í þjálfarateymi félagsins.

Maria er hluti af því öfluga þjálfarateymi sem vinnur að því að efla skautafærni, sjálfstraust og áhuga iðkenda á listhlaupi á skautum.

María er með umshón yfir: E3 og M2

 

Margrét Helga Kristjánsdóttir – Skautaþjálfari

Margrét Helga Kristjánsdóttir er fyrrverandi keppnisskautakona hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR). Hún hefur reynslu af keppnisskautun og hefur tekið þátt í mótum á vegum Skautasambands Íslands (ÍSS). Margrét hefur lokið 1. stigi ÍSS. Hún er einnig Crossfit þjálfari og sér mikið um afís styrktarþjálfun fyrir félagið.

Margrét Helga er með umsjón yfir: E5

 

Selma Ósk Sigurðardóttir – Skautaþjálfari

Hún hefur sjálf stundað listhlaup á skautum frá unga aldri og hefur öðlast góða reynslu af íþróttinni bæði sem iðkandi og keppandi.

Selma sameinar eigin skautaiðkun og þjálfun yngri iðkenda hjá félaginu og æfir með E2. Selma hefur lokið 1. stigi hjá ÍSÍ.
Selma er með umsjón yfir: Y3 og Y4

 

Sunna Björk Mogensen – Skautaþjálfari

Sunna Björk Mogensen er reynslumikill skautaþjálfari og fyrrverandi keppnisskautakona sem hefur um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu skautaíþróttarinnar á Íslandi. Hún hefur víðtæka reynslu af samhæfðum skautadansi (Synchronized Skating), bæði sem keppandi og þjálfari, auk þess að starfa á alþjóðlegum vettvangi fyrir Alþjóðaskautasambandið (ISU). Sunna hefur verið einn af drifkröftunum í þjálfun samhæfðs skautadans hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR).

Skautaferill og keppnisreynsla

Sunna hóf skautaferil sinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur þar sem hún keppti fyrst í einstaklingsskautun áður en hún sneri sér að samhæfðum skautadansi. Hún keppti fyrir Íslands hönd með skautaliðinu Ísmolunum, meðal annars á tveimur heimsmeistaramótum í fullorðinsflokki (Senior). Sunna keppti einnig með sænska liðinu Team Sweden 2 á heimsmeistaramótinu í Búdapest árið 2008.

Sunna er með þjálfararéttindi og hefur sótt sér frekari menntun erlendis, bæði á sviði samhæfðs skautadans og ísdans (Ice Dance). Hún hefur þjálfað samhæfða skautadanshópa hjá Skautafélagi Reykjavíkur nánast frá upphafi starfseminnar og átt mikilvægan þátt í að efla og þróa íþróttagreinina hér á landi.

Sunna hefur um árabil starfað fyrir Skautasamband Íslands (ÍSS), einkum við mótahald og í dómarakerfi skautaíþróttarinnar. Hún var fyrsti Íslendingurinn til að öðlast alþjóðleg réttindi sem Data & Replay Operator (DRO) hjá Alþjóðaskautasambandinu (ISU). Í því hlutverki hefur hún starfað á fjölda alþjóðlegra skautamóta, meðal annars Norðurlandamótum og mótum á vegum ISU. Sunna hefur einnig miðlað þekkingu sinni með námskeiðahaldi fyrir nýja starfsmenn í dómarakerfi ÍSS og þannig stuðlað að aukinni fagmennsku í mótahaldi á Íslandi. Fyrir störf sín hefur Sunna hlotið viðurkenningu frá Skautasambandi Íslands fyrir áralangt og mikilvægt framlag til íslenskrar skautaíþróttar.

Umsjón með æfingahópum: Y4, Eldhugum og Synchrostarfi félagsins

 

Jenný, Baldur og Árdís – Ungliðaþjálfarar

Jenný, Baldur og Árdís eru kraftmikið og metnaðarfullt þjálfaratríó hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR). Þau eru ungir og efnilegir þjálfarar sem hafa starfað við þjálfun hjá félaginu undanfarin þrjú ár.

Þau hafa öll lokið 1. stigi þjálfaramenntunar hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) auk þess að hafa sótt skyndihjálparnámskeið.

Á undanförnum árum hafa þau öðlast dýrmæta reynslu af þjálfun barna og ungmenna og leggja áherslu á jákvætt, hvetjandi og skemmtilegt æfingaumhverfi.

 

 

Sara Huld Örlygsdóttir – Styrktarþjálfari

Sara Huld Örlygsdóttir sér um styrktarþjálfun hjá listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur (SR). Hún hefur bakgrunn í bæði fimleikum og skautaíþróttinni og nýtir reynslu sína til að styðja við líkamlegan undirbúning skautara. Einnig hefur Sara starfað í fjölda ára sem fimleikaþjálfari.

Sara Huld hefur reynslu af skautaíþróttinni og æfði áður hjá Skautafélaginu Birninum. Árið 2015 stundaði hún einnig samhæfðan skautadans (Synchronized Skating) hjá listhlaupadeild SR.

Þessi reynsla veitir henni innsýn í þær líkamlegu kröfur sem fylgja listhlaupi á skautum, þar sem styrkur, jafnvægi, samhæfing og líkamsstjórn skipta miklu máli.