Undirbúningur fyrir mót

Fyrir mótið

Í byrjun sumars eða snemma að hausti þarf skautari að yfirfara keppnisdans eða fá nýjan ef þarf. Yngstu iðkendur félagslínu fá yfirleitt ekki einstaklingsdansa fyrir keppni, heldur kennir þjálfari öllum hópnum ákveðinn dans á æfingatíma. Aðrir keppnisdansar eru kenndir í einkatímum og greiða þarf sérstaklega fyrir þá. Þar er gott aðgengi að músíkinni og þjálfarinn getur einbeitt sér að einum skautara. Einnig þarf skautari að eiga keppnisfatnað, kjól, samfesting eða buxur og skyrtu/sparilegan bol. Þjálfarar vilj sjá keppnisfatnaðinn áður en keppnin er og ef verið er að fara að panta/kaupa nýjan keppnisfatnað vinsamlega sýnið og ráðfærið ykkur við þjálfarana.

Athuga í tíma, minnst 2 vikur fyrir mót, hvort þörf sé á að skerpa blöðin á skautunum. Ekki er gott að skerpa nokkrum dögum fyrir mót. Skautar þurfa að vera snyrtilegir og er gott að bera á þá hvítan skóáburð fyrir mót. Athuga hvort skautar og reimar séu í góðu ástandi.

Athuga að keppnisgjald sé greitt minnst 3 vikum fyrir mót og gengið frá ferðkostnaði sé keppnin utan Reykjavíkur.

Á mótum

Skautarar skulu ávallt vera mættir klukkustund fyrir áætlaðan keppnistíma. Skautarar í fyrsta keppnishópi dagsins mæta 45 mínútum fyrir áætlaðan keppnistíma. Hár og farði (ef við á) skal þá vera tilbúið.

Skautarar Skautafélags Reykjavíkur eiga alltaf að sýna fyllstu íþróttamennsku, tillitsemi og kurteisi á mótum, bæði þeim sem haldin eru í félaginu og sem gestir annarra félaga. Skautarar skulu alltaf vera í viðeigandi merktum félagsfatnaði á mótum.

Búningur þarf að vera þægilegur og passa vel. Pils á kjólum mega ekki vera síðari en rétt niður á læri. Athuga skal að ekki sjáist í nærföt.

Leyfilegt er að vera í keppnishönskum.

Sokkabuxur eiga ekki að vera götóttar. Gott er að hafa nál og tvinna í töskunni ef gera þarf við. Einnig má nota brúnan heftiplástur til að redda sér.

Hár á að vera snyrtilega frá gengið og spennur og skraut vel fest. Detti slíkt af meðan skautari skautar prógramið sitt getur það valdið frádrætti í einkunnagjöf.

Andlitsfarða á að stilla í hóf.

Á mótum skal passa að rétt sé gengið frá reimum á skautunum.

Þjálfarar sjá alfarið um að koma tónlist til mótshaldara.


Í töskunni á að hafa;

Skauta
Merktan félagsfatnað
Heilar sokkabuxur og auka eintak
Íþróttaskó
Vatnsbrúsa (varst þó að drekka mikið vatn rétt áður en farið er inn á ísinn að keppa)
Fylgihluti fyrir hár; spennur, teygjur, hárlakk, glimmer o.þ.h.
Farða, valfrjálst
Skautahlífar og handklæði til að þurrka blöðin.
Sippuband til upphitunar
Auka reimar

Á mótinu skal hafa í huga:

Þegar keppendur hafa lokið keppni er það góður siður að hvetja félagið sitt með því að mæta á pallana.

Tilkynna skal forföll með þriggja vikna fyrirvara. Ef skautari sem skráður er til keppni forfallast er áríðandi að tilkynna það til mótshaldara um leið og ljóst er að viðkomandi muni ekki keppa. Eftir að keppandi hefur verið skráður til keppni fást keppnisgjöld ekki endurgreidd nema gegn læknisvottorði.

Það er góður siður í skautaíþróttinni að henda inn á svellið eftir að keppandi hefur lokið við að skauta, rós eða smá gjöf, t.d. hárskraut, lítinn bangsa eða einhverja smáhluti tengda íþróttinni. Alls ekki nammipakkningar sem gætu sprungið við lendingu á ísnum og þar af leiðandi valdið töfum á keppninni.

Stjórn LSR beinir því til foreldra að iðkendur hendi ekki gjöfum inn á svellið til vina í keppnum og að þannig gjafir séu einskorðaðar við foreldra, afa, ömmur og ættingja. Þetta er vegna ábendinga frá foreldrum um að vinagjafir geti valdið leiðindum á milli iðkenda og óþarfa útgjöld.