Skautaskólinn byrjar

08/01/2016

 

images (4)

Skautaskólinn hefst sunnudaginn 10. janúar og verður kennt í tveimur hópum eins og á haustönn.  Þeir sem eru að koma í fyrsta sinn núna í janúar mæta eins og hér segir:

Sunnudagar: Mæting 11:30 – 12:45

Þriðjudagar: Mæting 17:15-18:30

Þeir sem voru fyrir áramótin mæta eins og hér segir: 

Þau börn sem voru á seinni æfingum fyrir áramótin og voru í Bláa, Fjólubláa og Appelsínugula hópunum eiga núna að mæta í fyrri tímann kl. 11:15

Öll börn sem voru í fyrri hópnum mæta áfram á sama tíma 11:15 og fara í sömu lita hópanna og þau voru í fyrir áramótin.

Börn sem voru í Gula og Græna hópunum fyrir áramót í seinni hóp, halda áfram í sínum hóp og mæta kl. 11:30

Þau börn sem þjálfarar telja vera tilbúin að færast upp í framhaldshópa, fá sendan póst um það.

Hér er hægt að finna stundaskránna.

Við hvetjum ykkur til að fylgjast  líka vel með öllum tilkynningum á Facebook hópnum okkar.

Þeir sem ekki hafa skráð sig og ætla að vera með í vetur eru hvattir til að gera það hið fyrsta og áður en þeir mæta, börn sem eru skráð ganga fyrir með pláss.

Hér er hægt að skrá börnin.

Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn

Þjálfarar og stjórn