Sumarnámskeið í íshokkí

14/05/2020

Íshokkídeild SR býður upp á heils- og hálfsdags íshokkí- og leikjanámskeið 4.-8. ágúst. Námskeiðið er fyrir 6-10 ára börn, bæði byrjendur og lengra komna og krakka sem æfa íshokkí á aldrinum 11-14 ára.
Námskeiðið er þriðjudag til laugardags.
Byrjendur geta fengið allan búnað lánaðan án endurgjalds – skauta, hjálma, hlífar og kylfu.

Aðalþjálfari Miloslav Racansky. 

Milos hefur verið yfirþjálfari yngri flokka SR síðustu þrjú ár við mjög góðan orðstír. Hann er einnig leikmaður með karlaliði SR, leikmaður með landsliði Íslands, aðalþjálfari U18 landsliðs Íslands og aðstoðarþjálfari U20 landsliðs Íslands.
Allar nánari upplýsingar og skráning á https://www.sportabler.com/shop/srishokki Ítarlegri upplýsingar er hægt að sjá með því að smella á örina við hliðina á dagsetningunni.