20/03/2023
Boðað er til aðalfundar Íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur miðvikudaginn 12. apríl kl. 20:00 í fundaraðstöðu Skautahallarinnar (fyrir ofan pallana).
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Þeir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram í stjórn vinsamlegast hafi samband við Hafliða, ritara stjórnar, haflidisaevarsson@gmail.com.