Alexandra nýr íþróttastjóri SR íshokkí

03/09/2023
Alexandra Hafsteinsdóttir, leikmaður og þjálfari hjá SR, hefur tekið við starfi íþróttastjóra yngri flokka félagsins. Hún mun halda utan um ört vaxandi starf yngri flokkanna og halda áfram að efla og bæta umgjörðina með áframhaldandi fjölgun iðkenda.
 
Alexandra, sem er SR-ingur í húð og hár, hefur leikið lykilhlutverk í kvennaliði SR og uppbyggingarstarfi í kringum það en auk þess þjálfað í yngri flokkum félagsins og í þjálfarateymi U18 landsliðs stúlkna.
Alexandra er metnaðarfull, drífandi og kemur hlutunum í verk – allt kostir sem eru mikilvægir í þessu starfi.
 
Við óskum Alexöndru til hamingju með starfið og hlökkum til samstarfsins.