U18 stúlknalandslið Íslands með silfur

18/01/2024

U18 stúlknalandslið Íslands lenti í öðru sæti á HM í B riðlið 2. deildar í Búlgaríu núna í janúar.

SR átti fimm frábæra fulltrúa í liðinu:
Andreu Diljá J. Bachmann í markinu
Bríeti Maríu Friðjónsdóttir í vörninni

Friðriku Rögnu Magnúsdóttur, Dagnýju Mist Teitsdóttur og Kristínu Ngoc Davíðsdóttir í sókninni

Í starfsliðinu voru einnig SR-ingarnir Alexandra Hafsteinsdóttir aðstoðarþjálfari og Erla Guðrún Jóhannesdóttir tækjastjóri.

Það var spennandi lokadagur mótsins sem byrjaði á 24-0 stórsigri Íslands á reynslulitlu S-Afríkuliði. Síðan var það leikurinn milli Búlgaríu og Nýja-Sjálands strax í kjölfarið sem skar úr um hvort Ísland myndi ná gullinu eða landa silfri. Það var alvöru leikur þar sem allt var í járnum allt þar til á 90 sekúndur voru eftir er Nýja-Sjáland braust út úr jafntefli og tryggði sér sigur og gull á mótinu.

En frábær árangur hjá U18 stúlkunum og munaði svo ótrúlega litlu á gulli og silfri. Þetta er aðeins þriðja HM liðsins en á því fyrst lenti það í síðasta sæti en náði strax bronsi í fyrra. Næsta ár verður það gullið!

SR-ingurinn Friðrika Ragna var valin besti leikmaður Íslands á mótinu í sínu fyrsta landsliðsverkefni. Hún vann einnig flest uppköst allra á mótinu og var í 7. sæti yfir stigahæstu leikmenn.

Aðalheiður Ragnarsdóttir var valin besti varnarmaður mótsins og Sólrún Arnardóttir var stigahæst íslenskra leikmanna í 4. sæti.

Frábært árangur hjá liðinu!

Allt um mótið og úrslit þess á mótsvef Alþjóða íshokkísambandsins.