Boðað er til aðalfundar Íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur þriðjudaginn 29. apríl kl. 20:00 í sal Skautahallarinnar.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Framboð til stjórnar skulu berast í síðasta lagi laugardaginn 26. apríl til ritara stjórnar, Benediktu Kristjánsdóttur bgkristjansdottir@gmail.com
Dagskrá aðalfundar íshokkídeildar skal vera samkvæmt lögum félagsins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fundargerð síðasta aðalfundar félagsins lesin upp.
3. Skýrsla stjórnar lögð fram fyrir liðið starfsár.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Kosning stjórnar til eins árs:
a) Formaður
b) Vara-formaður
c) Gjaldkeri
d) Ritari
e) Formaður meistaraflokksráðs karla.
f) Formaður meistaraflokksráðs kvenna.
g) Formaður barna- og unglingaráðs.
h) Tveir varamenn.
6. Lagabreytingar ef einhverjar eru.
7. Önnur mál