Brons í Póllandi og Andrea MVP og markmaður mótsins

15/04/2025

Kvennalandslið Íslands gerði góða ferð á HM A riðils 2. deildar í Bytom í Póllandi nú á dögunum. Liðið náði sínum besta árangri til þessa með bronsi og fór í gegnum mótið með fjóra sigurleiki og aðeins einn tapleik.

SR-ingar áttu mjög gott mót og að öllum öðrum ólöstuðum var Andrea Diljá Bachmann þar fremst í flokki. Hún stóð fyrir framan markið og varði eins og berserkur fékk aðeins á sig 6 mörk í fimm leikjum en varði 125 skot með hlutfallið 95,42% sem er ótrúlega gott á svona sterku móti.

Andrea var tvisvar valin besti leikmaður Íslenska liðsins bæði gegn tveimur sterkustu liðum mótsins. Í opnunarleik mótsins gegn Spáni tryggði hún sigur Íslands er hún varði víti og fékk að launum maður leiksins. Í leiknum á móti Póllandi  hélt hún sterkum andstæðingum í skefjum með því að verja 45 af 47 skotum og aftur maður leiksins. Andrea var síðan valin sterkasti leikmaður Íslands á mótinu, MVP, og besti markvörður mótsins.

Saga Blöndal átti stóran þátt í sigri Íslands á Spáni með eina marki vítakeppninnar, en það er eitthvað sem hún kann vel eins og sást hjá SR í vetur. Saga endaði með 1 mark og tvær stoðsendingar.

Friðrika Magnúsdóttir tók þátt í sínu fyrsta HM fyrir A-landslið kvenna, aðeins 16 ára gömul. Hún náði sína fyrsta A-landsliðsmarki og fyrstu stoðsendingu og var valin maður leiksins gegn Mexíkó. Geri aðrir betur.

Gunnborg Jóhannsdóttir stóð sig frábærlega og Ragnhildur Kjartansdóttir var öflug í vörninni og var með eitt mark og eina stoðsendingu.

Við óskum SR-stelpunum okkar og landsliðinu öllu til hamingju með frábæran árangur.