HM U20 í Serbíu lauk um helgina. Ungt lið Íslands endaði í síðasta sæti í riðlinum og spilar því í deildinni fyrir neðan á næsta ári, deild sem við þekkjum vel enda flakkað mikið milli þessara tveggja síðustu 25 ár. Liðið var hársbreidd frá því að halda sér uppi en erfið byrjun á mótinu kostaði liðið sæti í riðlinum.
Fyrsti leikur Íslands á mótinu var gegn Ísrael, leikurinn var jafn en andstæðingurinn aðeins sterkari og sigraði 5-4. Næsti leikur var gegn Nýja-Sjálandi sem kom upp um úr deildinni fyrir neðan. Fyrirfram vitað að þetta gæti orðið mikilvægasti leikur liðsins. Við hittum á okkar versta leik á mótinu og Nýja-sjáland sinn besta og niðurstaðan því 6-2 tap. Í þriðja leik mætti Ísland firnasterku liði Hollands, sem kom niður úr deildinni fyrir ofan og fór strax aftur upp. Þar sýndu strákarnir góða takta og stóðu vel í Hollendingum þrátt fyrir tap. Hollendingar skoruðu fleiri mörk á öll önnur lið á mótinu, nema Serba sem einnig fengu á sig 5 mörk frá þeim. Ísland byggði ofan á frammistöðu sína gegn Hollendingum í næsta leik gegn Serbum og lögðu heimamenn 4-2. Þá var aðeins einn leikur eftir gegn sterkum Áströlum og hann úrslitaleikur fyrir Ísland um sæti í deildinni. Ísland byrjaði betur og eftir frábæran fyrsta leikhluta leiddi liðið 2-0. Ástralir sóttu í sig veðrið en okkar drengir vörðust vel og bættu í forystuna 3-0 fyrir síðasta leikhluta. Þar fór þreytan að segja til sín enda pressuðu sterkir Ástralir stíft og fór svo að þeir skoruðu 6 mörk gegn 2 í leikhlutanum og sigruðu 6-5. Ísland aðeins einu marki frá því að halda sér uppi.
Eins og áður sagði er liðið ungt, 12 af 22 leikmönnum ennþá í U18 því niðurstaðan kannski skiljanleg að vissu leiti. En að sama skapi góður undirbúningur fyrir þá leikmenn sem fara til Sarajevo núna í febrúar til þátttöku á HM U18 og U20 á næsta ári.

Fulltrúar SR stóðu sig vel að vanda
Hér er samantekt úr tölfræði mótsins fyrir leikmenn félagsins.
Haukur Karvelsson
– eitt mark og tvær stoðsendingar
Ýmir Hafliðson Garcia
– eitt mark og ein stoðsending
Helgi Bjarnason
– tvær stoðsendingar
– +6, í öðru sæti Íslendinga yfir +/- og 18. sæti á mótinu öllu
– 51% faceoff sigrar, í öðru sæti yfir Íslendinga og 17. sæti á mótinu öllu
Haukur Steinsen
– ein stoðsending
Þorsteinn Garðarsson
– yngstur SR-inga að spila sitt fyrsta U20 mót og stóð sig vel
