Metfjöldi sótti minningarleik um Patta

24/02/2026

Patreks Freys Sveinssonar, sem lést í hræðilegu umferðarslysi á Miklubraut 5. febrúar, var minnst á eftirminnilega hátt í Skautahöllinni í Laugardal þriðjudaginn 11. febrúar s.l. Leikurinn, milli karlaliða SR og Fjölnis, var tileinkaður minningu Patta og rann öll miðasala, kökusala og pökkakast óskipt í fjölskyldu hans.

Það er nánast öruggt að aldrei hafa jafn margir komið á íshokkíleik á Íslandi því höllin var stappfull, vel yfir 1.100 mættu á leikinn og sáu SR sigra Fjölni örugglega með sex mörkum gegn einu.

Ljósmynd, Sævar Jónas

Hjartnæm og falleg minningastund var fyrir leik þar sem bæði lið, liðsfélagar Patta úr U18 liði SR, dómarar, prestur fjölskyldunnar og formenn beggja deilda stóðu saman og mynduðu hring í mínútuþögn.

Í leikhléi var spilað minningarmyndband með myndbrotum og ljósmyndum frá vinum Patta og fjölskyldu undir laginu Vor í Vaglaskógi í lifandi flutningu Hreims Heimissonar.

Kvennalið SR og SA vottuðu Patta og fjölskyldu svo virðingu í leik sínum föstudaginn 14. febrúar er liðin mættus í Laugardalnum. Samskonar minningarstund var haldin fyrir leik þar sem liðin minntust látins félaga.

Þess má geta að foreldrar og fjölskylda Patta mættu á báða leikina.

Patrekur var jarðsunginn mánudaginn 23. febrúar í Grafarvogskirkju og kistan borin út í gegnum heiðursvörð liðsfélaga hans úr SR.

Við minnumst Patreks með hlýhug og góðs liðsfélaga sem verður sárt saknað

#12
Patrekur Freyr Sveinsson
2009-2026

Forsíðumynd, Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Ljósmynd, Sævar Jónasson

Ljósmynd, Sævar Jónasson

Ljósmynd, Sævar Jónasson