Silfur í Sarajevo hjá U18 drengjum

23/02/2026

Alþjóða íshokkísambandið prufukeyrði nýtt fyrirkomulag á þessu móti í Bosníu. Liðunum var skipt í tvo hópa þar sem fyrst voru leiknir þrír leikir eftir styrkleikaröðun, áður en tekið var til við undanúrslit og úrslit.

Í fyrsta leik mætti Ísland veikburða liði Lúxemborgar og sigraði örugglega 12–1. Í næsta leik voru það Túrkmenar sem reyndust einnig lítil fyrirstaða fyrir okkar drengi og lokatölur 5–1. Í þriðja leiknum mættu þeir Tælendingum, fyrstu raunverulegu andstæðingum mótsins, og fyrirfram var talið líklegt að baráttan um gullið yrði við þá. Leikurinn var jafn og spennandi. Ísland var örlítið sterkari, en Tælendingar vörðust vel, með góðan markvörð og voru fljótir að refsa fyrir mistök. Leikurinn endaði með fyrsta tapi Íslands á mótinu, 4–2.

Ísland mætti heimamönnum frá Bosníu í undanúrslitum og eftir að hafa hrist þá af sér eftir fyrsta leikhluta varð niðurstaðan öruggur 8–2 sigur. Tæland vann einnig sín undanúrslit örugglega og því ljóst að liðin myndu mætast á ný í úrslitaleik um gullið.

Ísland var klárlega sterkari aðilinn í gullleiknum og yfirspilaði andstæðingana í skotum, 27 gegn 12 í fyrstu tveimur leikhlutunum, og fór með 2–1 forystu inn í lokaþriðjunginn. Þar komust Tælendingar hins vegar yfir með tveimur mörkum á skömmum tíma, en Ísland sýndi mikinn karakter og jafnaði fyrir leikslok. Það var þó Tæland sem tryggði sér sigurinn í framlengingu og tók gullið. Þeir geta þakkað markverði sínum, sem gerði okkar strákum lífið leitt í báðum leikjum með frábærri frammistöðu og var að lokum valinn besti markvörður mótsins.

Hér er samantekt úr tölfræði mótsins fyrir leikmenn félagsins en SR-ingar komu mikið við sögu:

Ýmir Hafliðason Garcia

– 7 mörk og 5 stoðsendingar
– 5. stigahæsti á mótinu og stigahæstur Íslendinga
– +5 í +/-
– Maður leiksins gegn Turkmenistan
– Valinn besti leikmaður Íslands á mótinu af mótsnefnd

Helgi Bjarnason, fyrirliði liðsins
– 5 mörk og 3 stoðsendingar
– 8. stigahæsti á mótinu og annar stighæstur Íslendinga
– +4 í +/-
– 69% Faceoff sigrar í öðru sæti á mótinu
– Maður leiksins í fyrri leiknum gegn Tælandi

Sæmundur Þorsteinsson
– 2 stoðsendingar
– +10 í +/- í þriðja sæti á mötinu og efstur Íslendinga
– Valinn besti varnarmaður mótsins af mótsnefnd

Þorsteinn Óli Garðarson
– 1 mark og 2 stoðsendingar
– +6 í +/-
– 56% Faceoff sigrar og í 8. sæti á mótinu