Fyrsti leikurinn var gegn gestgjöfunum, sem hafa verið með veikasta liðið undanfarin ár í þessari deild. Það var ekki annað upp á teningnum í ár og Ísland vann öruggan 21–0 sigur. Næst voru það Belgar, sem áttu líklega sinn besta leik gegn okkur. Þeir vörðust af hörku og markvörðurinn þeirra var í miklu stuði, svo við áttum erfitt með að koma pökknum í netið þrátt fyrir mikla sókn. Leikurinn endaði í jafntefli og fór alla leið í vítakeppni, þar sem andstæðingarnir tryggðu sér tvö af þremur stigum. Þriðji leikur liðsins var gegn gullliði mótsins, Rúmeníu, sem reyndist sterkari og sigraði 5–1. Þegar þarna var komið sögu var að duga eða drepast fyrir liðið ef það ætlaði sér að ná í verðlaunapening á mótinu. Liðið kom heldur betur til baka og sigraði Mexíkó örugglega 5–1 í næstsíðasta leiknum. Þá var ljóst að lokaleikurinn gegn Taipei yrði hreinn úrslitaleikur um silfrið. Sá leikur reyndist einn sá mest spennandi og skemmtilegasti leikur mótsins. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Ísland skoraði gullmark og tryggði bæði sigur og silfur á mótinu.

Ljósmynd: Viðar Garðarsson/ÍHÍ
Fulltrúar SR stóðu sig vel að vanda
