Það verður magnaður mars í Skautahöllinni í Laugardal þegar bæði karla- og kvennalið félagsins keppa til úrslita.
Kvennalið SR er í úrslitum í fyrsta skiptið í sögunni og karlaliðið varð á dögunum deildarmeistari í fyrsta sinn síðan 2015.
Merkið í dagatalið því af þessu vill enginn missa.
Liðið sem fyrst sigrar þrjá leiki lyftir bikarnum og fagnar Íslandsmeistaratitlinum 2026
Leikir karlaliðsins eru eftirfarandi:
Leikur #1 | þri. 10. mars kl. 19.45 | Skautahöllin Laugardal
Leikur #2 | fim. 12. mars kl. 19.30 | Akureyri
Leikur #3 | lau. 14. mars kl. 17.45 | Skautahölllin Laugardal
Leikur #4 | þri. 17. mars kl. 19.30 | Akureyri*
Leikur #5 | fim. 19. mars kl. 19.45 | Skautahöllin Laugardal *
Leikir kvennaliðsins eru eftirfarandi:
Leikur #1 | lau. 21. mars kl. 16.45 | Akureyri
Leikur #2 | þri. 24. mars kl. 19.45 | Skautahöllin Laugardal
Leikur #3 | fim. 26. mars kl. 19.30 | Akureyri
Leikur #4 | lau. 28. mars kl. 17.45 | Skautahöllin Laugardal *
Leikur #5 | þri. 31. mars kl. 19.30 | Akureyri*
*Leikur fjögur og fimm fara fram ef annað liðið sigrar ekki alla þrjá
