Aðalfundur íshokkídeildar 2026

14/04/2026

Boðað er til aðalfundar Íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur miðvikudaginn 29. apríl kl. 20:00 í sal Skautahallarinnar. Á fundinum verða lagðar fram tillögur stjórnar til breytinga á lögum íshokkídeildar. Hér er tengill á breytingartillögur. Gulmerkt er nýtt og yfirstrikað það sem fer út.

Samtímis er boðað til framhalds-aðalfundar sama kvöld, miðvikudaginn 29. apríl, kl. 20:30 þar sem hefðbundinni dagskrá aðalfundar verður fylgt og þá samkvæmt lögum félagsins eftir framangreindar lagabreytingar, hljóti þær samþykki félagsmanna.

Framboð til stjórnar skulu berast í síðasta lagi sunnudaginn 26. apríl til ritara stjórnar, Benediktu Kristjánsdóttur bgkristjansdottir@gmail.com