Kári maður mótsins og stigahæstur íslendinga

15/04/2026

Eftir frábæra byrjun hjá karlalandsliðinu á HM í Búlgaríu með þremur sigrum í röð fataðist flugið á lokametrunum, tap fyrir heimamönnum og Ísrael í lokaleiknum þýddi að liðið endaði með brons.

 

Kári Arnarsson maður mótsins úr liði Íslands tekur við Tissot úri í verðlaun.

 

Liðið mun klárlega byggja á góðu gengi fyrrihluta móts og læra af síðustu tveimur leikjunum fyrir næsta tímabil og vera þar í baráttunni um gullið. Mótið fór fram í Sofiu í Búlgaríu dagana 6.–12. apríl sl.

Hér er samantekt úr tölfræði mótsins fyrir leikmenn félagsins. SR-ingar komu mjög mikið við sögu og áttu 14 af 21 marki liðsins. Yfirlit yfir leiki liðsins á mótinu má finna neðst í fréttinni ásamt myndum af SR-ingum á mótinu.

Kári Arnarsson

– Maður mótsins úr liði Íslands
– 2 mörk og 6 stoðsendingar, stigahæstur Íslendinga á mótinu og 10. stigahæstur allra
– Efstur allra á mótinu í sigrum í uppkasti, 63.22%
– +3 í +/-

Alex Sveinsson

– 3 mörk og 2 stoðsendingar
– Í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn Íslands ásamt Hákoni og Gunnlaugi
– +4 í +/- í 12.–14 sæti allra á mótinu

Hákon Magnússon

– 3 mörk og 2 stoðsendingar
– Í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn Íslands ásamt Alex og Gunnlaugi

Styrmir Maack

– 2 mörk og 3 stoðsendingar
– +4 í +/- í 12.–14 sæti allra á mótinu

Gunnlaugur Þorsteinsson

– Valinn maður leiksins gegn Nýja Sjálandi
– 3 mörk
– Í 2. sæti yfir markahæstu leikmenn Íslands ásamt Alexi og Hákon
– +2 í +/-

Eggert Þorgilsson

– 1 mark og 2 stoðsendingar
– +3 í +/-

Níels Hafsteinsson

– 3 stoðsendingar
– +3 í +/-

Liðið mætti Taípeí í fyrsta leik og landaði þar nokkuð örugglega 6–5 sigri þótt andstæðingarnir hafi gert heiðarlega atlögu með tveimur mörkum á síðustu mínútum leiksins. Í öðrum leik mætti liðið Nýja-Sjálandi þar sem sigurinn var aldrei í hættu, 6-2 var lokaniðurstaðan. Í þriðja leik var andstæðingurinn Kyrgistan sem veitti harða mótspyrnu en góð vörn og markvarsla tryggði annan góðan sigur, 6–3.

Þegar þar var komið við sögu var Ísland með þrjá sterka sigra í röð og sex mörk skoruð í þeim öllum. Þar sem Ísrael hafði tapað stigum í tveimur viðureignum sínum þurfti Ísland bara einn sigur í viðbót til að landa gullinu. Það reyndist þó erfiðara en að segja það.

Næst síðasti leikurinn var gegn búlgörsku gestgjöfunum sem enn voru án sigur og liðið hafði mætt og sigrað 10–2 í æfingaleik fyrir mótið. Þeir reyndust eiga sinn besta leik á mótinu og sigruðu nokkuð óvænt 3–1 en þriðja markið kom í tómt netið þegar Ísland freistaði þess að jafna með fleiri sóknarmönnum.

Það þýddi að úrslitaeinvígi yrði í lokaleiknum gegn Ísrael sem hefur oft reynst landsliðum Íslands erfiður ljár í þúfu. Það reyndist líka raunin og 5–2 tap varð staðreynd. Nýja Sjáland nýtti tækifærið og hoppaði um leið yfir Ísland í stigum og stal silfrinu. Þótt Ísrael hafi náð gulli fá þeir ekki að spila í deildinni fyrir ofan að ári þar sem henni var aflýst vegna stríðsins í Miðausturlöndum.