HM kvenna í Slóveníu lokið

21/04/2026

Landslið Íslands endaði í 5. sæti í A riðli 2. deildar HM kvenna í Bled í Slóveníu á dögunum. Liðið byrjað frábærlega með sigri á gestgjöfunum, sem komu niður um deild, en náði sér ekki á strik eftir það. Liðið sýndi að það getur unnið góðar íshokkí-þjóðir og byggir á því sem gekk vel fyrir næsta mót að ári og lærir af því sem miður fór. Liðið endaði með fjögur stig eins og Tævan og Ástralía en óhagstæð innbyrðis úrslit ollu því að liðið endaði neðst.

Hér er samantekt úr tölfræði mótsins fyrir leikmenn félagsins.  Yfirlit yfir leiki liðsins á mótinu má finna neðst í fréttinni ásamt myndum af SR-ingum á mótinu.

Teresa Snorradóttir

– 2 mörk og 1 stoðsending, önnur markahæst í liði Íslands
– 22% skotnýting, sú besta í liði Íslands
– í 2.-4 sæti yfir stigahæstu leikmenn liðsins

Friðrika Magnúsdóttir
– 1 mark og 2 stoðsendingar
– í 2.-4. sæti yfir stigahæstu leikmenn liðsins
– í 2.-3. sæti yfir stoðsendingar í liði íslands

Gunnborg Jóhannsdóttir
– 1 mark

Andrea Bachmann
– Yfir 90% hlutfall skota varin, fékk á sig 136 skot og varði 123 af þeim

Bríet Friðjónsdóttir
– +1 í +/- efst í liði Íslands
– á sínu fyrsta A-landsliðs móti

María Eiríksdóttir

– Kom aftur inn í landsliðshópinn eftir hlé

Eins og áður kom fram endaði liðið í 5. sæti en Norður-Kórea dróg sig úr keppni því aðeins 5 lið á mótinu í stað 6. Af þeim sökum fellur liðið ekki um deild þrátt fyrir að enda í síðasta sæti.

Í fyrsta leiknum gegn gestgjöfunum frá Slóveníu lenti liðið undir 3-0 en skoraði síðan fjögur ósvöruð mörk frá lok annars leikhluta. Sigurmarkið kom rétt fyrir leikslok. Þetta var klárlega langbesta frammistaða liðsins á mótinu. Næsti leikur var gegn Póllandi sem reyndist langsterkasta liðið í ár og tók gullið mjög örugglega. Ísland komst yfir í byrjun leiks en eftir það lá Pólland nánast í sókn það sem eftir lifði leiks og náðu að jafna strax í fyrstu lotu. Ísland varðist hetjulega og hélt leiknum jöfnum allt þar til í þriðja leikhluta þegar stíflan brast og Pólland setti þrjú mörk síðustu tíu mínútur leiksins, þarf af eitt í tómt markið. Pólland átti 49 skot á mark gegn 10 skotum Íslands. Þriðji leikur liðsins var gegn Áströlum sem reyndust sterkari en okkar konur og sigruðu nokkuð örugglega 4-1.

Síðasta leikur liðsins var því úrslitaleikur um hvort liðið, Íslands eða Tævan, myndi verma botnsætið eða hvort myndi næla sér í brons. Ísland var klárlega sterkari og sótti meira en það var hins vegar Tævan sem skoraði fyrst og var komið í 2-0 í byrjun annarrar lotu. Ísland minnkaði fljótlega muninn í 2-1. Liðin skoruðu sitthvort markið í viðbót áður en annarri lotu lauk. Ísland náði svo loks að jafna rétt fyrir leikslok með auka sóknarmanni á kostnað markmanns. Ekkert mark var skorað í framlengingu og þurfti því vítakeppni til að skera úr um úrslit. Ekki tókst Íslandi að skora í vítakeppninni en Tævan setti tvö og tók því aukastigið. Tævan, Ástralía og Ísland enduðu öll með fjögur stig en óhagstæð innbyrðis úrslit urðu til þess að Ísland endaði neðst af þeim þremur.