Ný stjórn íshokkídeildar kosin á aðalfundi

30/04/2026

Aðalfundur íshokkídeildar fór fram í gærkvöldi í sal Skautahallarinnar í Laugardal. Um 30 manns sóttu fundinn.

Lögð voru fram uppfærð lög félagsins sem voru samþykkt af fundargestum. Kristín Skjaldardóttir frá Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs kynnti viðbragðsáætlun við ofbeldi, einelti, slysum og öðru sem gæti komið upp innan íþróttafélags. Samþykkt var á fundinum að félagið fylgi þessari áætlun í sínum störfum, eins og ÍSÍ hefur lagt til við íþróttahreyfinguna í heild.

Ný stjórn var sjálfkjörin þar sem engin mótframboð bárust.
Friðjón B. Gunnarsson var endurkjörinn formaður.
Bjarni Helgason var endurkjörinn varaformaður.
Atli Þór Árnason var kjörinn ritari og kemur nýr í stjórn.
Guðmundur Logi Norðdahl var endurkjörinn í meistaraflokksráð karla.
Karen Eiríksdóttir var kjörin í meistaraflokksráð kvenna og kemur aftur í stjórn eftir árs hlé.
Marta Joy Hermannsdóttir var endurkjörin í barna- og unglingaráð.
Ásgerður Fjóla Friðbjarnardóttir var kjörin meðstjórnandi, var áður varamaður.
Bjarni Eyvinds Þrastarson var kjörinn meðstjórnandi, var áður varamaður.
Sigurður Jóhann Stefánsson var kjörinn meðstjórnandi, var áður varamaður.

Engin framboð bárust í hlutverk gjaldkera en stjórn hefur heimild til að skipa einstakling í það hlutverk þegar hentugur aðili finnst.

Félagið vill koma á framfæri þakklæti til fráfarandi stjórnarfólks: Elísabetar Stefánsdóttur, Benediktu Kristjánsdóttur, Pálín Helgadóttur og Ástu Særós Haraldsdóttur.