Skráning hér!
Skautaskóli LSR hefst sunnudaginn 6. september.
Skautaskólinn er tvisvar í viku, þriðjudaga kl:17:00-18:00 og sunnudaga kl:11:45-12:45.
Upphitun fer fram á gólfi í 15 mínútur, síðan er klætt sig í skauta og farið inn á ísinn í 30 mínútur. Mikilvægt að vera með hjálm og vettlinga. Önnin endar með jólasýningu 13. desember og jólaballi 20. desember.
Iðkendum er skipt á ísnum eftir aldri og getu svo að allir fái æfingar við hæfi. Á önninni verða tekin nælupróf sem lesa sér má til um hér . Þegar Iðkandi hefur náð ákveðinni færni fær hann nælu að launum, nælurnar eru innifaldar í æfingagjöldunum. Ef að iðkandi týnir nælunni er hægt að kaupa nýja hjá skautastjóra.
Ef að spurningar vakna þá er hægt að senda tölvupóst á: skautastjóri@gmail.com

