SR Íslands- og deildarmeistarar 2026

14/03/2026

Karlalið SR sigraði SA 3-2 á heimavelli í Skautahöllinni í Laugardal í dag og tryggði sér þannig Íslandsmeistaratitlinn 2026. Liðið vann úrslitaeinvígið 3-0.

SR varð líka deildarmeistari eftir sigur á SA í tveimur lokaleikjum Topp-deildarinnar.

SR sigraði 6 síðustu leiki sína gegn SA í deild og úrslitum.
SR er ósigrað í 10 síðustu leikjum en hefur ekki tapað í venjulegum leiktíma í 14 síðustu leikjum sínum.

Tölfræði liðsins var frábær en liðið átti 5 stigahæstu leikmenn Toppdeildarinnar; Alex, Hákon, Kára, Sölva og Styrmi. Hákon Magnússon var stigahæsti varnarmaður deildarinnar, Eduard í fimmta og Haukur Steinsen í sjötta. Ævar Björnsson var besti markvörður deildarinnar.

Í úrslitum átti SR þrjá stigahæstu leikmennina; Hákon, Axel og Níels en í topp 10 voru einnig Heiðar, Þorgils og Styrmir. Hákon var aftur stigahæstur varnarmanna, Þorgils í þriðja og Eduard í fjórða. Bestu markvörður úrslitanna var Jóhann Ragnarsson og líklega maður úrslitarimmunnar.

Þetta er 8. Íslandsmeistaratitill karlaliðs SR og sá þriðji á fjórum árum. Jafnar þetta besta árangur SR 2006-2009 sem einnig sótti þrjá titla á fjórum árum; varð Íslandsmeistari 2006, 2007 og 2009.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem SR sópar SA í úrslitum 3-0. Fyrst gerðist það árið 1999 en í annað skiptið árið 2006 en þá lyfti liðið bikarnum heima í Laugardalnum, líkt og nú.

Liðið hefur fjórum sinnum innsiglað Íslandsmeistaratitlinn á heimavelli, árið 2000, 2006, 2009 og í ár 2026.

Við óskum leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og félaginu öllu til hamingju með titlana.

Ljósmynd: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Myndband: Bjarni Helgason