Sumar skautanámskeið!
Listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur stendur fyrir sumarnámskeiðum í sumar eins og fyrri sumur. Í boði verða heilsdag-og hálfsdagsnámskeið í Skautahöllin í Laugardal
Skipulögð dagskrá fer fram frá 9:00-16:00/09:00-12:00/13:00-16:00 gæsla verður í boði 30 mínútur áður en námskeið hefst og eftir að því lýkur (08:30-16:30), einnig verður hægt að skrá sig í heitan mat í hádeginu frá Kaffi Flóru.
Dagskrá námskeiðanna er mjög fjölbreytt og er lituð af hreyfingu, útiveru, ferð í húsdýragarðinn og auðvitað skellum við okkur á skauta á hverjum degi bæði fyrir og eftir hádegi.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hvert námskeið. Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á skautastjori@gmail.com
Skráningar hefjast 10. apríl á abler: https://www.abler.io/shop/SR

