SR Íslandsmeistari kvenna 2026

30/03/2026

Kvennalið SR skráði söguna í dag þegar þær sigruðu SA í fjórða leik úrslitarimmunnar og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn 2026. Þetta er fyrsta skiptið sem SR spilar til úrslita í íshokkí kvenna og þar að leiðandi fyrsti titillinn.

Kvennalið SR var endurvakið tímabilið 2020-2021 eftir samstarf Reykjavíkurliðanna þrjú tímabil þar á undan. Þar áður hafði verið starfandi kvennalið hjá SR frá árinu 2010 en aðeins náð að sigra einn leik á þeim tíma, árið 2016 í framlengingu. Það lagði þó grunninn að því sem síðar skyldi koma. Engin leikmaður er enn úr því liði en fjórir leikmenn sem spiluðu fyrsta tímabilið með endurvöktu kvennaliði SR 2020-2021 eru í Íslandsmeistaraliðinu í ár. Systurnar Arna og Bríet Friðjónsdóttir, Heiður Atladóttir og Friðrika Magnúsdóttir. Arna og Heiður eru líka æskuvinkonur og byrjuðu saman að æfa íshokkí. Friðrika Magnúsdóttir hafði aldur til að spila eftir áramót þetta upphafstímabil. Auk þeirra fjögurra var Andrea Bachmann í starfshópi liðsins núna en hún spilar í Svíþjóð þessi misserin.

Athyglisvert er að tveir leikmenn úr liði SR virðast hafa einstaklega gott lag á að næla sér í Íslandsmeistaratitla. Teresa Snorradóttir spilaði með Fjölni þrjú tímabil og vann titla seinni tvö en þar áður hafði hún unnið nokkra með SA. Berglind Leifsdóttir er svo með samfellda titlasögu í mörg tímabil. SR í ár, Fjölnir tvö síðustu tímabil og SA nokkur ár þar á undan – líklega 8 titlar í röð. Geri aðrir betur.

Þessi úrslit voru hnífjöfn og allir leikir sigruðust með minnsta mun og tveir fóru alla leið í framlengingu og vítakeppni.

Niðurstaða leikjanna var eftirfarandi
#1 | SA 1 – SR 0 | Akureyri
#2 | SR 1 – SA 1 | 2-1 eftir framlenging og vítakeppni | Reykjavík
#3 | SA 1 – SR 2 | Akureyri
#4 | SR 0 – SA 0 | 1-0 eftir framlenging og vítakeppni | Reykjavík

Mörk SR í rimmunni skoruðu
– Eleonor 1 mark
– Arna 1 mark
– Gunnborg 1 mark
– Friðrika 2 vítaskot og 1 stoðsending
– Ragnhildur 1 vítaskot
– Kristína Ngoc 1 stoðsending
– Brynja Þórarinsdóttir 1 stoðsending

Það má með sanni segja að þessi úrslit hafi verið einvígi milli sterkra varna og tveggja frábærra markvarða sem báðar eru kanadískar. Julianna endaði efst með 97.37% markvörslu og Shawlee rétt rúmu prósentustigi á eftir henni. Ótrúlegar tölur sem útskýra vel af hverju svona fá mörk voru skoruð í þessari rimmu. Varnarleikur SR var tekinn upp á næsta stig í úrslitum og náði að halda sterkri sókn SA algjörlega í skefjum öll úrslitin. SA skoraði að meðaltali tæplega fjögur mörk í hverjum leik í deildinni í vetur en skoraði aðeins þrjú mörk í fjórum leikjum úrslitanna.

Julianna, að öðrum ólöstuðum, var án efa besti leikmaður úrslitarimmunnar. Hún varði öll víti frá SA nema eitt í leikjunum tveimur þar sem vítakeppni þurfti til að skera úr um úrslit.

Ljósmynd og myndband: Bjarni Helgason