Skautafélag Reykjavíkur – Listskautadeild kynnir með ánægju nýtt hlutverk innan félagsins: Performance Coach and Development Mentor (PCDM). Með þessu skrefi er markmiðið að styrkja enn frekar afreksstarf félagsins, bæta skipulag og styðja við markvissa uppbyggingu til framtíðar.
Hlutverkið sameinar tæknilega þjálfun, markvissa tímabilsáætlanagerð og leiðbeinandi stuðning (mentorship) með ríka áherslu á þróun íþróttafólks og árangur í keppni. Markmiðið er að byggja upp öflugt og sjálfbært umhverfi þar sem iðkendur geta dafnað bæði innan og utan íssins.
Performance Coach and Development Mentor mun starfa í nánu samstarfi við Sport Director félagsins, sem áfram ber meginábyrgð á skipulagi og heildarstefnu starfsins. Hlutverkið er ætlað að styðja við þá vinnu með aukinni eftirfylgni, þróun og faglegri uppbyggingu innan afreksstarfsins.
Nýja hlutverkið styður sérstaklega við markmið félagsins um að vera
„Góður þjálfari fyrir alla“ og mun leggja áherslu á:
- Betra skipulag, upplýsingaflæði og eftirfylgni
- Stöðugar umbætur í starfi og þjónustu við iðkendur
- Áframhaldandi þróun verkefna á borð við CCQ gæðastjórnunarkerfið
- Skauta fyrir alla – jákvætt og heilbrigt umhverfi sem styður bæði andlega og líkamlega heilsu
- Frekari styrkingu keppnislínu með aukinni þjálfarauppbyggingu
Performance Coach and Development Mentor mun einnig styðja við þróun þjálfarateymis, samskipti innan félagsins og langtímaáætlanir um framfarir og árangur.
Guillaume Kermen (Giom), sem tekur að sér hlutverkið kemur með yfir 25 ára reynslu af þjálfun og uppbyggingarstarfi á afreksstigi, ásamt alþjóðlegri reynslu frá meðal annars Íslandi, Svíþjóð, Ítalíu, Frakklandi og Finnlandi. Þá býr viðkomandi yfir menntun í executive coaching og meistaragráðu sem nýtist vel í uppbyggingu faglegs og metnaðarfulls starfsumhverfis.
Með þessu nýja skrefi undirstrikar Skautafélag Reykjavíkur metnað sinn til að efla afreksstarf, skapa heilbrigt og styðjandi umhverfi fyrir alla iðkendur og byggja sterkan grunn fyrir framtíð félagsins.

