03/05/2022
Íshokkísambandi Íslands setti á laggirnar U16 mót stúlkna í fyrra og var það endurtekið í ár. Fyrir þá sem ekki vita eru kyn ekki aðskilin í íshokkí á Íslandi fyrr en í meistaraflokkum.
Markvisst uppbygginarstarf í kvennahokkí hjá SR síðustu ár er farið að skila árangri því liðið stóð sig frábærlega, unnu 3 af 4 leikjum sínum og voru markahæsta liðið. Alexandra Hafsteinsdóttir og April Orongan leikmenn og þjálfarar stýrðu liðinu.
SR er með gott bland af ungum og reyndari leikmönnum en 5 þeirra eru enn í U12 svo framtíðin er björt.