Allar upplýsingar um æfingar, aukaæfingar og breytingar á dagskrá fara í gegnum Abler appið. Skráðir iðkendur (líka þeir sem eru að prófa frítt 1-2 skipti) hafa aðgang að appinu.
Allar aðrar upplýsingar og starfsemi yngri flokka og félagsins fara fram í gegnum Facebook hópinn Yngri flokkar SR íshokkí.
Hægt er að hafa samband við sr.ishokki@gmail.com með fyrirspurnir eða spyrja þjálfara eða aðra foreldra á æfingartíma.
Þar hefja allir 15 ára og yngri sinn íshokkíferil. Þegar skautagrunninum er náð færast krakkarnir yfir á hinn helming íssins þar sem U8/U10 eru með æfingar. Þar er meiri áhersla á íshokkí, krakkar eru með kylfur (sem þau geta fengið lánaða) og gera æfingar með pökka í bland við skautaæfingar. Krakkarnir eru yfirleitt nokkrar vikur í Íshokkískólanum áður en þeir færast yfir – en þó eru sumir af þeim allra yngstu lengur, fer bara eftir því hvenær þau eru tilbúin. Nánari upplýsingar um Íshokkískólann er hægt að sjá hér.
SR lánar búnað án endurgjalds og krakkar geta verið með hann þar til þau fjárfesta sjálf í eigin búnaði. Á síðu Pollýönnu er hægt að sjá lista yfir grunnbúnað sem að börnin þurfa að vera í. Fyrir þá sem vilja kaupa búnað þá er bæði hægt að kaupa notað eða nýtt. Hokkífálkinn, sjoppan fyrir ofan pallana í Laugardalnum, selur eitthvað af búnaði (ekki skauta). Hokkífálkinn er ekki með fastan opnunartíma en hægt að hafa samband í gegnum Facebook síðu hans.
Notaðan búnað er hægt að kaupa á tveimur Facebook síðum: Íshokkíbúnaður til sölu, notað og nýtt og Hokkí sölusíða.
Nýjan búnað er hægt að kaupa í skautaversluninni Pollýönnu og sport verslun Hobbý og Sport. Svo er einnig hægt að panta af erlendum netverslunum eins og MonkeySports í Svíþjóð. Við ráðleggjum fólki að byrja á skautum, hálshlíf og hjálmi þegar byrjað er að versla búnað. Gott er að fá ráðleggingar varðandi stærðir hjá félaginu – þjálfurum, foreldrafélagi eða reyndari foreldrum.
Þegar krakkar byrja er best að vera klædd í léttan fatnað undir hlífunum. Þegar lengra er komið er gott að fjárfesta í svitagalla, en það er léttur undirgalli undir hlífunum.
Venjulega eru tvö barnamót í Reykjavík og tvö á Akureyri á hverri leiktíð. Misjafnt er hvernig fyrirkomulag er á ferðir norður eftir aldri iðkenda og er það auglýst sérstaklega fyrir hvert mót. Nánar um mót tímabilsins má sjá hér. Foreldrafélagið býður upp á fjáraflanir, yfirleitt 1-2 á hverjum vetri. Upplýsingar um þær eru birtar í Facebook hópnum okkar og á Abler.
Ekki hika við að spyrja þjálfara eða aðra reyndari foreldra á æfingartíma, setja inn spurningar í Facebook hópinn okkar, eða ræða við þjálfara og reyndari foreldra í íþróttinni.