Sumarskautaskóli LSR

11/06/2018

Skautafélag Reykjavíkur – Listhlaupadeild

SR – Listhlaupadeild verður með sumarskautaskóla bæði í júlí og ágúst eins og hefð er fyrir og eru námskeiðin fyrir stráka og stelpur á aldrinum 4-11 ára.  Staðsetning námskeiða er í Skautahöllinni í Laugardal.

 

Námskeið samanstendur af leikjanámskeiði og skautakennslu sem er sett upp á eftirfarandi hátt:

Leikjum sem innihalda upphitun, teygju- og þrekæfingar sem eru bæði úti og inni en það er veðrið sem mun stýra því.

Kennslu í grunnskautun og öryggisatriðum.

Kynningu á grunnatriðum í listhlaupi á skautum.

 

 

 

Námskeiðin eru hálfan daginn kl. 08.45-12:00 og kl. 13.00-16.15.

ATH!  Börnin þurfa að koma með hlý föt og vettlinga fyrir ístímann og hollt nesti. Það er í lagi að börnin mæti frá 8:30 fyrir hádegi og svo 12:40 eftir hádegi en skipulagða dagskráin byrjar ekki fyrr en á tímanum hér fyrir ofan.

 

Júlí

Vika 1.  02. – 06. júlí (mánudag – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000, – ½ dagur

Vika 2.  09. – 13. júlí (mánudag – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000, – ½ dagur

Vika 3. 16. – 20. júlí (mánudag – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000, – ½ dagur

Vika 4.  23. – 27. júlí (mánudag – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000, – ½ dagur

 

Ágúst

Vika 1.  30. júlí. – 02. ágúst (mánudag – fimmtudags) – 4 dagar kr. 12.000, – ½ dagur

Vika 2.  08. – 10. ágúst (miðvikudag – föstudags) – 3 dagar kr. 9.000, – ½ dagur

 

Skráning fer fram á skautafelag.felog.is – Velja þarf tímabil og fyrir / eftir hádegi.

Systkini fá afslátt.

Umsjónarmenn námskeiðanna eru þjálfarar og íþróttafræðingur.

 

Heimasíða:  www.skautafelag.is/list

netfang:  gjaldkeri@skautafelag.is