Skautaskólinn er byrjaður og allir velkomnir.

25/08/2018

Kæru foreldrar og forráðamenn,

núna er skráningin byrjuð fyrir skautaskólann sem byrjar samkvæmt stundarskrá 25. ágúst og unglinganámskeiðið sem byrjar samkvæmt stundarskrá 26. ágúst. Síðan viljum við minna á félagapeysurnar okkar og munu þær vera á afslætti til og með 2. september.

Upplýsingar um skautaskólann

Upplýsingar um unglinganámskeið

Skráning fer fram HÉR með rafrænum skilríkjum og munið að ef þið ætlið að nota frístundastyrkinn þá þarf að ráðstafa styrknum í gegnum þessa skráningarsíðu en ekki í gegnum rafræna Reykjavík til þess að styrkurinn lækki æfingargjöldin.

Á myndunum sjáið þið útlitið á félagspeysunum og verða þær á tilboði um óákveðinn tíma, stærð 116-152 á 7.500 kr og stærð XS-L á 9.500 kr.