Keppnisferð til Riga

11/11/2018

9 stúlkur frá LSR kepptu á Volvo Open Cup í Riga dagana 7.-11. nóvember sl.

Viktoría Lind Björnsdóttir og Emilía Rós Ómarsdóttir, báðar í Junior keppnisflokki,  voru fyrstar til að keppa af okkar stúlkum.  Viktoría Lind hafnaði í 33. sæti með 89,03 stig sem er þó nokkuð frá hennar besta.  Emilía Rós endaði síðan í 37. sæti með 84,02 stig.

Í keppnisflokknum Advanced Novice áttum við 4 keppendur.  Herdís Heiða Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og bætti sitt persónulega met í langa prógramminu og endaði í 18. sæti samanlagt með 75,02 stig.  Rebekka Rós Ómarsdóttir var ekki langt frá Herdísi og endaði í 20. sæti með 74,67 stig.  Eydís Gunnarsdóttir varð síðan í 41. sæti með 54,06 stig og Margrét Eva Borgþórsdóttir varð í 42. sæti með 49,79 stig.

Kristín Jökulsdóttir keppti í Basic Novice flokki og hafnaði í 19. sæti með 23,15 stig.

Vilborg Gróa Brynjólfsdóttir keppti í flokknum Springs B og varð í 27. sæti með 17,04 stig sem er nokkuð frá hennar besta.

Indíana Rós Ómarsdóttir keppti síðan í Cubs B flokknum og endaði í 31. sæti með 16,07 stig.

Óskum við þeim öllum til hamingju með þennan árangur og góðrar heimaferðar á morgun.