Skautaskólinn vorönn 2019

04/12/2018

Gleðilegan desember en núna styttist óðfluga í nýtt ár og er því ekki seinna vænna en að byrja að skipuleggja tómstundir barnanna. En þann 9. janúar mun skautaskólinn hjá Skautafélagi Reykjavíkur listhlaupadeild byrja og eru allir velkomnir í prufutíma. Skautaskólinn okkar er fyrir börn á aldrinum 3 – 10 ára og eru æfingar á miðvikudögum frá klukkan 17:15 – 18:55 og á laugardögum frá klukkan 11:30 – 13:10. Fyrir þá sem eru eldri þá erum við með unglinganámskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 – 18 ára. Skráningar hefjast í janúar til þess að foreldrar og forráðamenn geti sett inn nýtingu á frístundastyrk ef þeir kjósa að nota hann.

Með von um að sjá sem flesta í janúar.

Kveðja,

Þjálfarar og stjórn LSR