Íshokkískólinn fer aftur af stað 5. maí

02/05/2020

Íshokkískóli SR fer aftur af stað eftir samkomubann þriðjudaginn 5. maí kl. 18.
Við tökum vel á móti stelpum og strákum á öllum aldri, bæði þeim sem voru komin af stað og þeim sem langar að prófa þessa skemmtilegu íþrótt.

Allar nánari upplýsingar hér

Íshokkískóli SR er ætlaður þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á skautum, byrjendum á öllum aldri. Íshokkískólinn snýst fyrst og fremst um það að hafa gaman. Þjálfarar eru Alexandra Hafsteinsdóttir og Erla Guðrún Jóhannesdóttir.