Listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur tilkynnir hér með:
SR mótið 2021
sem haldið verður í
Skautahöllinni í Laugardal
24.-25. apríl 2021
Skráning
Skráning og greiðsla keppnisgjalda skulu berast eigi síðar en 16. apríl 2021 í tölvupósti til motsstjori.lsr@gmail.com á meðfylgjandi eyðublaði.
Á eyðublaðinu skal koma fram fullt nafn keppanda, kennitala, keppnisflokkur og keppnisgjald.
Keppnisflokkar og dómarakerfi
Keppt er eftir reglum ÍSS um keppni í félagalínu og notað dómarakerfi C þar. Og eftir reglum um keppni í Special Olympics og Adaptive Skating (SO og AS) og notað dómarakerfi D þar.
Keppnisflokkar félaga
6 ára og yngri stúlkur/7 ára og yngri drengir 14 ára og yngri stúlkur/15 ára og yngri drengir
8 ára og yngri stúlkur/9 ára og yngri drengir 15 ára og eldri stúlkur/16 ára og eldri drengir
10 ára og yngri stúlkur/11 ára og eldri drengir 25 ára og eldri
12 ára og yngri stúlkur/13 ára yngri drengir
Keppnisflokkar Special Olympics og Adaptive Skating
Level I
Level II
Level III
Level IIII
Keppnisröð
Dregið verður í keppnisröð 21. apríl 2021.
Keppnisröð verður birt á www.skautafelag.is/list
Úrslit
Úrslit verða birt á www.skautafelag.is/list að móti loknu.
Verðlaun
Í keppnisflokkum 6/7, 8/9 og 10/11 ára og yngri eru ekki gefin upp verðlaunasæti. Allir keppendur fá þátttökuviðurkenningu. Í öðrum keppnisflokkum eru veittir verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú (3) sætin. Þátttökuviðurkenningar eru veittar til annarra keppenda.
Dagskrá – birt með fyrirvara
Laugardagurinn 24. apríl kl. 8.00-11:45
Sunnudagurinn 25. apríl kl. 8.00-11:45
Endanleg dagskrá verður birt á www.skautafelag.is/list 20. apríl 2021.
Keppnisgjöld
Keppnisgjald að fjárhæð kr. 3.500 skal greiðast fyrir hvern keppanda eigi síðar en 16. apríl 2021.
Greiða skal inn á reikning LSR, 515-14-412854, kt: 410897-2029. Staðfesting á greiðslu sendist á gjaldkeri.lsr@gmail.com
Tónlist
Tónlist skal skila í rafrænu formi inná drive möppu sem SR mun deila með félögunum. Einnig þurfa keppendur að hafa tónlist á rafrænu formi með sér til vara.
Forföll keppenda
Foröll skulu tilkynnast á netfangið motsstjori.lsr@gmail.com Einungis er hægt að sækja um endurgreiðslu vegna keppnisgjalda hafi forföll verið tilkynnt áður en keppandi átti að keppa. Endurgreiðsla nemur helmingi keppnisgjalda.
Skiladagsetningar
Skráning á mót og greiðsla keppnisgjalda 16. apríl 2021
Skil á tónlist 16. apríl 2021
Keppnisröð og dagskrá birt 21. apríl 2021
Mótsstjóri
Rut Hermannsdóttir
Persónuverndarákvæði (GDPR)
Með skráningu á mótið gerir skautari og/eða forráðamaður sér grein fyrir því að upplýsingar um gengi skautara á mótinu eru gerðar opinberar og geymdar hjá Skautasambandi Íslands. Þá gerir skautari/forráðamaður sér grein fyrir að teknar eru ljósmyndir af skauturum á mótinu og þær birtar opinberlega á heimasíðu sambandsins, heimasíðu Skautafélags Reykjavíkur og mögulega í fjölmiðlum.
F.h. Listahlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur,
Mótsstjóri