Íshokkí- og leikjanámskeið í júní og ágúst

12/04/2022
SR íshokkí býður upp á skemmtileg íshokkí- og leikjanámskeið í júní og ágúst – bæði heils- og hálfsdags. Allt í frábæru nærumhverfi í Laugardalnum.
Aðalþjálfari og umsjónarmaður er Kristín Ómarsdóttir aðalþjálfari Íshokkískóla félagsins og leikmaður með kvennaliði SR en hún hefur mikla reynslu af þjálfun á ís, kennslu og umsjón sumarnámskeiða.
13.-16. júní. Heils- og hálfsdagsnámskeið fyrir 6-11 ára.
20.-24. júní. Heils- og hálfsdagsnámskeið fyrir 6-11 ára.
2.-5. ágúst. Heils- og hálfsdagsnámskeið fyrir 6-11 ára.
8.-12. ágúst. Heils- og hálfsdagsnámskeið fyrir 6-11 ára.