Listskautadeild Skautafélags Reykjavíkur tilkynnir hér með:
SR-mótið 2023
sem haldið verður í
Skautahöllinni í Laugardal
4.-5. mars 2023
Keppnisflokkar
Keppt er eftir reglum ÍSS um keppni í félagalínu og reglum um keppni í Special Olympics.
Keppnisflokkar félaga
6 ára og yngri 14 ára og yngri
8 ára og yngri 15 ára og eldri
10 ára og yngri 25 ára og eldri
12 ára og yngri
Keppnisflokkar Special Olympics og Adaptive Skating
Level I Parakeppni
Level II SO
Level III Unified
Level IIII
Dómarakerfi og úrslit
Keppniskerfi félaganna, notast við Stjörnukerfi.
Keppniskerfi Special Olympics og Adaptive Skating, notast við Stjörnukerfi SO/AS.
Úrslit verða birt á www.skautafelag.is/list að móti loknu.
Keppnisröð
Dregið verður í keppnisröð 28. febrúar 2023.
Keppnisröð verður birt á www.skautafelag.is/list
Verðlaun
Í keppnisflokkum 6, 8 og 10 ára og yngri eru ekki gefin upp verðlaunasæti. Allir keppendur fá þátttökuviðurkenningu. Í öðrum keppnisflokkum eru veittir verðlaunapeningar fyrir efstu þrjú (3) sætin. Þátttökuviðurkenningar eru veittar til annarra keppenda.
Dagskrá – birt með fyrirvara
Laugardagurinn 4. mars kl. 8.00-12:45.
Sunnudagurinn 5. mars kl. 8.00-12:45.
Endanleg dagskrá verður birt á www.skautafelag.is/list 28. febrúar 2023.
Skráning og keppnisgjöld
Skráning og greiðsla keppnisgjalda skulu berast eigi síðar en 25. febrúar 2023 í tölvupósti til motsstjori.lsr@gmail.com á meðfylgjandi eyðublaði.
Á eyðublaðinu skal koma fram fullt nafn keppanda, kennitala, keppnisflokkur og keppnisgjald.
Keppnisgjald að fjárhæð kr. 4.500 skal greiðast fyrir hvern keppanda eigi síðar en 25. febrúar 2023.
Greiða skal inn á reikning LSR, 528-26-7001, kt: 410897-2029.
Vinsamlegast setjið í skýringu: SR mótið, keppnisgjöld félags. Staðfesting greiðslu sendist á gjaldkeri.lsr@gmail.com.
Tónlist
Tónlist skal skila í rafrænu formi inn á drive möppu sem SR mun deila með félögunum. Einnig þurfa keppendur að hafa tónlist á rafrænu formi með sér til vara.
Forföll keppenda
Foröll skulu tilkynnast á netfangið motsstjori.lsr@gmail.com Einungis er hægt að sækja um endurgreiðslu vegna keppnisgjalda hafi forföll verið tilkynnt áður en keppandi átti að keppa. Endurgreiðsla nemur helmingi keppnisgjalda.
Skiladagsetningar
Skráning á mót og greiðsla keppnisgjalda 25. febrúar 2023
Skil á tónlist 25. febrúar 2023
Keppnisröð og dagskrá birt 28. febrúar 2023
Mótsstjórar
Eva Dögg Benediktsdóttir
Rut Hermannsdóttir
Með skráningu á mótið gerir skautari og/eða forráðamaður sér grein fyrir því að upplýsingar um gengi skautara á mótinu eru gerðar opinberar og geymdar hjá Skautasambandi Íslands. Þá gerir skautari/forráðamaður sér grein fyrir að teknar eru ljósmyndir af skauturum á mótinu og þær birtar opinberlega á heimasíðu sambandsins, heimasíðu Skautafélags Reykjavíkur og mögulega í fjölmiðlum.
F.h. Listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur,
Mótsstjóri