Listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur tilkynnir hér með:
SR mótið 2019 sem haldið verður í Skautahöllinni í Laugardal 9. – 10. febrúar.
Skráning í keppni:
Skráning skal berast eigi síðar en 27. janúar 2019 í tölvupósti. Skila skal heildarlista frá hverju félagi fyrir sig.
Taka skal fram fullt nafn keppanda, kennitala og keppnisflokkur.
Keppnisflokkar félaga og reglur*:
18 ára og eldri | 12 ára og yngri | 6 ára og yngri |
13-17 ára | 10 ára og yngri | |
10-15 ára | 8 ára og yngri |
*Athugið að keppt verður eftir nýjum reglum ÍSS um keppnisflokka félaga.
Keppnisgjald:
Keppnisgjald, 3200 krónur, skal greiðast fyrir hvern keppanda í keppnisflokkum félaga. Greiða skal inn á reikning LSR eigi síðar en 27. janúar 2019.
Vinsamlegast setjið í skýringu: SR mótið 2019, keppnisgjöld félags.
Staðfesting greiðslu sendist á gjaldkeri.lsr@gmail.com
Listhlaupadeild SR
Rnr.: 0528-26-007001
Kt.: 410897-2029
Dregið um keppnisröð:
Dregið verður rafrænt um keppnisröð þriðjudaginn 5. febrúar og verður keppnisröðin birt á heimasíðu LSR.
Úrslit:
Úrslit verða birt á heimasíðu LSR að móti loknu.
Tónlist:
Félögin þurfa að skila tónlist á rafrænu formi með wetransfer.com og senda á gjaldkeri.lsr@gmail.com eigi síðar en 1. febrúar 2019. Einnig þurfa keppendur að hafa tónlist á rafrænu formi með sér til vara.
Mótsstjórar:
Anna Gígja Kristjánsdóttir
Eva Dögg Benediktsdóttir
F.h. Listahlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur,
Elín Gautadóttir
Formaður LSR